Smiðjudagur frístundaráðgjafa

Verkefnastjórar í félagsmiðstöðvum og frístundaklúbbum frístundamiðstöðvanna í Reykjavík stóðu fyrir Smiðjudegi þriðjudaginn 22. janúar. Markmiðið var að deila reynslu og þekkingu og eiga saman ánægjulega og innihaldsríka samverustund. Í félagsmiðstöðvum er unnið að ólíkum viðfangsefnum með börnum og unglingum og en frístundaráðgjafar leita sífellt nýrra leiða til að virkja börn og unglinga til þátttöku og kynna fyrir þeim og vinna með ólík viðfangsefni í félagsmiðstöðvastarfinu. Flestir leiðbeinendur á Smiðjudeginum komu úr röðum frístundaráðgjafa og smiðjurnar sjálfar fóru fram víðsvegar um borgina í húsnæði félagsmiðstöðvanna.

Í Frostaskjóli voru tvær smiðjur. Aðra þeirra leiddi Andri Már Kristjánsson um hvernig setja eigi upp heimspekinámskeið eða -klúbb fyrir unglinga og hvernig nota megi heimspeki í starfi með unglingum. Á sama tíma fór Haraldur Óli Ólafsson í undirstöðuatriði Jiu Jitsu í sjálfsvörn með áhugasömum í sal miðstöðvarinnar.

Facebook-fjölmiðillinn og ég var yfirskrift smiðju sem fram fór í félagsmiðstöðinni Laugó. Þar sóttu fjölmargir fræðslu Bjarka Sigurjónssonar um Facebook-samfélagið og fengu kynningu á fræðslu sem hann hefur sett saman fyrir unglinga í 8. bekk Laugalækjarskóla. Í félagsmiðstöðinni Þróttheimum kenndi Inga Lára Björnsdóttir þátttakendum svokallaða „tie dye“ aðferð við að lita og hanna mynstur í klæði skref fyrir skref. Afrakstur smiðjunnar voru glæsilegir stuttermabolir í regnbogans litum og leiðbeiningar sem þátttakendur geta nýtt í starfi sinna félagsmiðstöðva.

Í Gufunesbæ í Grafarvogi mættu vel klæddir þátttakendur til leiks í smiðju um útieldun undir leiðsögn Nils Óskars Nilssonar. Í Gufunesbæ eru kjöraðstæður en þátttakendur fræddust líka um leiðir sem hægt er að fara þótt ekki séu tilbúin útieldstæði við allar félagsmiðstöðvar. Eftir að eldamennsku lauk gæddu þátttakendur sér á dýrindissúpu og brauði sem hvort tveggja var eldað yfir opnum eldi.

Í Miðbergi voru tvær ólíkar smiðjur í boði. Leiðbeinendur í annarri þeirra voru unglingar sem eiga sæti í Ungmennaráði SAMFÉS (Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi) en þau hafa unnið jafningjafræðsluefni um einelti sem þau kynntu fyrir þátttakendum sem reyndu jafnframt verkefnin á eigin skinni. Hópeflissmiðja var á sama tíma í Miðbergi undir leiðsögn Jóhanns Fjalars Skaptasonar. Þar lærðu þátttakendur ennþá fleiri hópeflisleiki til að nýta í starfi með börnum og unglingum auk þess sem þeir skemmtu sér hið besta.

Smiðja í grímugerð var framlag félagsmiðstöðvarinnar Tíunnar en þar veittu Arndís Ósk Atladóttir og Þórleif Guðjónsdóttir leiðsögn í grímugerð. Flestir þátttakendur unnu grímur úr pappír en jafnframt prófaði hópurinn að vinna með gifs. Grímugerð hefur notið mikillar vinsældar í starfi Tíunnar og því var kærkomið fyrir aðra frístundaráðgjafa að kynnast viðfangsefninu.

Það var samdóma álit allra að smiðjudagurinn hefði veitt innsýn í ný verkefni til að vinna með í starfi félagsmiðstöðva og mikill vilji er til að standa að slíku aftur.