Borgarráð samþykkir breytt deiliskipulag fyrir Brynjureit

Borgarráð samþykkti breytt deiliskipulag fyrir Brynjureit við Laugaveg á fundi sínum í gær, 24. janúar 2013.

Deiliskipulagið gerir ráð fyrir að á reitnum rísi friðsæl og notaleg byggð íbúða og atvinnuhúsnæðis.

Brynjureitur markast af Laugavegi, Vatnsstíg, Hverfisgötu og Klapparstíg, en deiliskipulagi verður breytt á hluta reitsins sem tekur yfir Hverfisgötu 40 - 44, Klapparstíg 31 og Laugaveg 23, 27A og 27B. Allur reiturinn sem deiliskipulagið nær til er 7.436 fermetrar að stærð en breytingin á reitnum nær til 2.670 fermetra.

Deiliskipulagstillagan á reitnum var auglýst frá 21. nóvember 2012 til og með 4. janúar 2013 og bárust tvö athugasemdabréf. Tillagan var samþykkt í umhverfis- og skipulagsráði 16. janúar 2013.

Á Brynjureit verður gert ráð fyrir nýbyggingum að Hverfisgötu 40, 42 og 44 og einnig að byggt verði á baklóðum. Yfirbragð reitsins við Hverfisgötu verður nokkuð samfellt og götumyndin styrkist mikið. Nýbyggingar við götuna eiga að taka mið af nærliggjandi húsum.

Ásýnd Laugavegs breytist ekki og verður húsið sem stendur við Laugaveg 23 verndað, en í fyrri tillögu var áformað að rífa það. Húsið var friðað með nýjum lögum um menningarminjar 1. janúar 2013 og verður það gert upp samkvæmt deiliskipulaginu.

Allt að sex metra breið göngugata verður fyrir miðju reitsins og tengir saman Laugaveg og Hverfisgötu. Aðkoma frá Laugavegi verður á milli Laugavegs 25 – 27 en tenging við Hverfisgötu verður í gegnum Hverfisgötu 42 með lyftu og stigakjarna. Einnig verður aðkoma að göngugötunni frá Klapparstíg, á milli Klapparstígs 29 – 31 og myndast þannig göngutengsl að Hljómalindarreit. Lágmarksbreidd þess stígs verður 3.5 metri.

Er gert ráð fyrir að meðfram göngugötunni verði verslunar-, atvinnu- og þjónustuhúsnæði á jarðhæð. Verður göngugötunni lokað á næturnar.

Samkvæmt deiliskipulaginu verður vandað til allra götugagna, svo sem ljósastaura, bekkja, vatnshana, ruslastampa og hjólastæða auk þess sem hugað verður sérstaklega að lýsingu í göturýmum. Lokaðar geymslur verða fyrir sorp.

Við endurhönnun Hverfisgötu verða gangstéttir breikkaðar og gatan gerð meira aðlaðandi og skjólríkari með gróðursetningu trjágróðurs auk þess sem lýsing og svipmót götunnar verður bætt.

Arkitektastofan arkitektur.is hefur teiknað breytt skipulag á Brynjureit.