Borgarráð samþykkir deiliskipulag fyrir Einholt-Þverholt
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær nýtt deiliskipulag á reitnum Einholt-Þverholt sem afmarkast af Einholti, Háteigsvegi, Þverholti og Stórholti samanber samþykkt skipulagsráðs frá 17. október síðastliðnum. Hyggst Búseti svf. reisa á milli 200 - 230 íbúðir á reitnum.
Deiliskipulagið gerir ráð fyrir uppbyggingu íbúðabyggðar á 3-5 hæðum á suðurhluta reits en norðurhluti reits er að mestu óbreyttur. Á suðurhluta reits er gert ráð fyrir fjölbreyttum gerðum íbúða og bílageymslum á tveimur hæðum í kjallara.
Deiliskipulagið er unnið á vegum Búseta svf. og Reykjavíkurborgar. Gerð var lýsing fyrir deiliskipulagið unnin af ASK arkitektum dagsett í júní 2012 þar sem áherslur skipulagsyfirvalda varðandi reitinn koma fram. Lýsingin var kynnt almenningi og hagsmunaðilum.
Á reitnum er gert ráð fyrir fjölbreyttri hönnun og útfærslu nýbygginga þar sem um er að ræða byggingar í grónu hverfi. Yfirbragð byggðarinnar verður ljóst og skal hver stigagangur hafa mismunandi yfirbragð til að stuðla að fjölbreytni. Mikilvægt er að byggingarnar myndi ekki einsleitan og samfelldan vegg en það næst fram með því að brjóta upp húshliðar með litum, efni og útbyggingum.