Fjölmennur íbúafundur í Hlíðum

Fjölmennur íbúafundur í Hlíðum

Tæplega 80 manns sóttu íbúafund borgarstjóra og embættismanna Reykjavíkurborgar sem haldinn var fyrir íbúa í Hlíðahverfi í gær. Fundurinn var haldinn á Kjarvalsstöðum.

Fjölmargar fyrirspurnir komu fram á fundinum. Var m.a. spurt um hljóðmanir við Stigahlíð, göngu- og hjólabrýr yfir Miklubraut, framkvæmdir við Klettaskóla og frístundaaðstöðu í Háteigsskóla. Þá kom fram fyrirspurn um hvort ekki væri hægt að taka húsnæði hverfastöðvar á Klambratúni undir frístundaaðstöðu ungmenna í hverfinu. Þá var bent á að bæta mætti lýsingu við þjónustuíbúðakjarna aldraðra við Bólstaðarhlíð og mála kantsteina. Umferðarmál eru íbúum í Hlíðahverfi hugleikin enda er jafnan mikil umferð í gegnum hverfið.

Borgarstjóri fór yfir helstu áherslur í hverfinu og rakti síðan í ítarlegu máli þau verkefni sem kosin voru til framkvæmda í hverfinu í verkefninu Betri hverfi í fyrra. Íbúar í Hlíðum eru tæp 10.000 og voru verkefni framkvæmd fyrir tæpar 26 milljónir í hverfinu í fyrra.  M.a. nýjar gangstéttir við Klambratún, ný leiktæki á leikskólalóðum, gróðursetning trjáa, bætt lýsing og fleira.

Nú er óskað eftir hugmyndum að nýjum verkefnum sem framkvæmd verða á þessu ári. Er hægt að setja þær inn á undirvefinn Betri hverfi á samráðsvefnum www.betrireykjavik.is . Opið er fyrir innsetningu hugmynda til 15. febrúar n.k. en þá verða hugmyndirnar teknar og kostnaðarmetnar af borginni.  

Íbúar í öllum hverfum borgarinnar eru hvattir til að skoða hverfin sín með opnum huga og senda inn sem fjölbreyttastar hugmyndir. Ekki síður er mikilvægt að íbúar velti fyrir sér hugmyndum sem aðrir setja inn á vefinn og styðji þær eða hafni. Það tryggir að ekki rati inn hugmyndir sem fáir vilja sjá að verði framkvæmdar. Borgarstjóri hvatti einnig íbúa til að senda inn dýrari hugmyndir þannig að fólk geti einnig valið að kjósa færri en stærri hugmyndir. Kostnaður við verkefni takmarkast þó af fjármagninu sem úthlutað er til hvers hverfis.

Sama fjármagni er veitt til verkefna sem bæta íbúahverfi borgarinnar í ár, svokallaðra hverfapotta, eða 300 milljónum króna, en kosið verður hugmyndirnar í rafrænum íbúakosningum dagana 14. - 19. mars nk.

Ítarefni:

Ræða borgarstjóra.

Fundargerð í Hlíðum.