Flæði: Salon-sýning af safneigninni verður opnuð á Kjarvalsstöðum

Stærsta myndlistarsýning sem haldin hefur verið hér á landi verður opnuð á Kjarvalsstöðum laugardaginn 2. febrúar, kl.16. Sýningin sem ber heitið Flæði, er sett upp í tilefni af 40 ára afmælisári Kjarvalsstaða en markmiðið er að draga allan almennan safnkost safnsins fram úr geymslunum og sýna hann. Sýningin sem hengd er upp í anda salon-sýninga, þar sem listaverkin þekja sýningarveggina frá gólfi til lofts, tekur stöðugum breytingum þá tæpu fjóra mánuði sem hún stendur yfir, jafnvel meðan gestir eru viðstaddir. Það má því búast við að allt að þúsund verk verði dregin fram í dagsljósið á þessari óvenjulegu og síbreytilegu sýningu. Samhliða sýningunni verður safneignin ljósmynduð, skráning hennar yfirfarin og aðbúnaður og ástand á verkunum metið. Áhorfendur geta því fylgst með starfinu og virt fyrir sér þau fjölbreyttu verk sem eru í eigu Listasafns Reykjavíkur.

Birgir Ísleifur Gunnarsson, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur opnar sýninguna en hann opnaði Kjarvalsstaði þann 24. mars 1973.



AFMÆLISTILBOÐ

Flæði er síbreytileg sýning og því geta gestir komið aftur og aftur og séð ný verk. Þeir gestir sem koma í þriðja sinn á sýninguna fá frítt inn og fá jafnframt árskort Listasafns Reykjavíkur í kaupbæti en kortið gildir á sýningar og viðburði í Hafnarhúsi, Kjarvalsstöðum og Ásmundarsafni.

UPPÁHALDSVERKIÐ

Í tilefni af afmælissýningunni hefur hópi fólks verið boðið að koma og velja sér uppáhaldsverkið sitt á sýningunni og segja frá því hvað það er sem gerir verkið einstakt í augum viðkomandi. Þetta verður gert  á sérstökum hádegisfyrirlestrum á fimmtudögum frá 14. febrúar - 18. apríl. Meðal þeirra sem velja verk vikunnar eru: Jón Gnarr borgarstjóri, Guðrún Ásmundsdóttir leikkona, Hugleikur Dagsson teiknari, Hrefna Sætran matreiðslumeistari, Andri Snær Magnason rithöfundur, Einar Bárðarson forstöðumaður Höfuðborgarstofu, Ómar Ragnarsson fjölmiðlamaður og Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður.

DAGSKRÁ Á KJARVALSSTÖÐUM

Fimmtudag 14. febrúar kl. 12.15

Kjarvalsstaðir – Flæði

Gestaspjall um verk vikunnar.

Jón Gnarr, borgarstjóri ræðir um val sitt á verki vikunnar.

Fimmtudag 21. febrúar kl. 12.15

Kjarvalsstaðir - Flæði

Gestaspjall um verk vikunnar.

Guðrún Ásmundsdóttir, leikkona ræðir um val sitt á verki vikunnar.

Fimmtudag 28. febrúar kl. 12.15

Kjarvalsstaðir - Flæði

Gestaspjall um verk vikunnar.

Hugleikur Dagsson, teiknimyndahöfundur ræðir um val sitt á verki vikunnar.

Fimmtudag 7. mars kl. 12.15

Kjarvalsstaðir - Flæði

Gestaspjall um verk vikunnar.

Hrefna Sætran, matreiðslumeistari ræðir um val sitt á verki vikunnar.

Fimmtudag 14. mars kl. 12.15

Kjarvalsstaðir – Flæði

Gestaspjall um verk vikunnar.

Sunnudag 17. mars  kl. 15

Kjarvalsstaðir - Flæði

Rannsóknarleiðangur og smiðja fyrir alla fjölskylduna.

Fimmtudag 21. mars kl. 12.15

Kjarvalsstaðir - Flæði

Gestaspjall um verk vikunnar.

Andri Snær Magnason, rithöfundur ræðir um val sitt á verki vikunnar.

Fimmtudag 4. apríl kl. 12.15

Kjarvalsstaðir - Flæði

Gestaspjall um verk vikunnar.

Einar Bárðarson ræðir um val sitt á verki vikunnar.

Fimmtudag 11. apríl kl. 12.15

Kjarvalsstaðir - Flæði

Gestaspjall um verk vikunnar.

Sunnudag 14. apríl kl. 15

Kjarvalsstaðir - Flæði

Á bak við tjöldin – leiðsögn um það rannsóknstarf sem fram fer samhliða sýningunni.

Fimmtudag 18. apríl kl. 12.15

Kjarvalsstaðir – Flæði

Gestaspjall um verk vikunnar.