Hundur eða blaðra?

Hundur eða blaðra? Vímuefnaleit í framhaldsskólum og skólaskemmtunum er yfirskrift morgunverðarfundar hjá Náum áttum miðvikudaginn 6. febrúar næstkomandi. Fundurinn hefst að venju klukkan 08.15 og lýkur klukkan 10.00.

Fjallað verður að þessu sinni um vímuefnaleit í framhaldsskólum og á skólaskemmtunum. Yfirskriftin hundar eða blöðrur? vísar til umræðu um hvort það standist lög að nota hunda við vímuefnaleit í framhaldsskólum, en áfengismælar hafa lengi verið notaðir þar við leit.

Framsöguerindi  flytja Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, en hún spyr hvar mörkin liggi milli friðhelgi einkalífs barna og vímuefnaleitar?  Fulltrúar framhaldsskóla skýra sjónarmið nemenda og að lokum fjallar Héðinn S. Björnsson, verkefnastjóri heilsueflandi framhaldsskóli hjá embætti landlæknis, um hvað virkar best í forvörnum.  

Morgunverðarfundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir en með morgunverði kostar þátttakan 1.800 kr. Fundarstjóri verður Árni Einarsson. Náum áttum er samstarfsverkefni samtaka og stofnana í forvörnum en nýlega var vefsíða verkefnisins uppfærð. 

Skráning á fundinn.

Auglýsing fundarins.