Barnalist úr Laugarnesskóla í Brunei

Tíu nemendur úr Laugarnesskóla eiga myndverk á alþjóðlegri listsýningu í Brunei. Þau eru einu fulltrúar Evrópuríkja á sýningunni og fengu á  dögunum viðurkenningu fyrir þátttökuna. Börn frá 21 landi eiga verk á þessari sýningu sem sett var upp í Royal Wharf Art Gallery. Samtökin Big ones little ones (BOLO) stóðu fyrir sýningunni sem hefur vakið verðskuldaða athygli. Yfirskrift hennar var Í mínum heimi og sendu börn inn myndir um þann heim sem þau vildu helst eiga. 



Með því að smella hér má sjá skemmtilegt myndband frá BOLO sýningunni í Brunei.

Hér má einnig nálgast frétt um sama efni hjá RÚV frá 19. janúar (smellið á 17.55).