Borgarstjórn og bæjarstjórn Akureyrar funda í Hofi

""

Á morgun föstudaginn 8. febrúar kl. 16.00 verður haldinn sameiginlegur fundur borgarstjórnar Reykjavíkur og bæjarstjórnar Akureyrar. Fundurinn fer fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri og er markmið fundarins að ræða sameiginleg hagsmunamál sveitarfélaganna tveggja og efla kynni borgarfulltrúa Reykjavíkur og bæjarfulltrúa Akureyrar.

Borgarfulltrúum verður boðið í kynnisferð um Akureyri og verður meðal annars skoðuð aðstaðan á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli. 

Elsa Yeoman, forseti borgarstjórnar og Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar stýra fundinum sem verður opinn áhorfendum og einnig sendur út í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni N4. 

Dagskrárliðir fundarins eru sem hér segir:

1. Samvinna Akureyrar og Reykjavíkur.

2. Samgöngumál.

3. Velferðarmál.

4. Fræðslu-, frístundar- og menningarmál.

 

Áætluð fundarlok eru um kl. 18.00.