Hver eru skilaboð áfangastaða? - Málþing um vörumerkjamótun áfangastaða í Hörpu

Tónlistarhúsið Harpa.

Höfuðborgarstofa stendur fyrir málþingi um vörumerkjamótun áfangastaða  (e. destination branding), þriðjudaginn 26. febrúar í Silfurbergi í Hörpu. Tveir af helstu sérfræðingum heims í mörkun áfangastaða verða með framsögu og er málþingið öllum opið og ókeypis.



Um þessar mundir er að fara í gang vinna við endurskoðun á vörumerki Reykjavíkur  "Reykjavík - Pure Energy" sem hefur verið í notkun í áratug.  Markmið málþingsins er að efla og styrkja gæði þeirrar vinnu sem fer í endurmat og  uppbyggingu vörumerkisins. Fyrirlestrar verða almenns eðlis og nýtast þeim er starfa við bæði ferðaþjónustu sem og svæðisbundna markaðssetningu á Íslandi s.s. eigendum, stjórnendum, markaðsfólki og öðrum hagsmunaaðilum sem vinna að kynningu og uppbyggingu á vörumerkjum.

 LEIÐANDI Í MARKAÐSSTEFNUMÓTUN ÁFANGASTAÐA Í HEIMINUM



Heimsóknum  ferðamanna til Íslands hefur fjölgað ár frá ári og nú ber svo við að heimsóknum erlendra ferðamanna  er einnig farið að fjölga verulega  vetrartímann eða á svokallaðri lágönn. Höfuðborgarstofa vonast til að sérþekking þeirra fyrirlesara sem leitað hefur verið til skili sér inn til markaðstarfs á höfuðborgarsvæðinu í ferðaþjónustu og öðrum útflutningsgreinum. Dr. Teemu Moilanen er án efa einn helsti sérfræðingur heims í þessum fræðum. Hann hefur stýrt rannsóknum og markaðsstefnumótun fyrir borgir eins og Amsterdam, Barcelona, Berlín, Búdapest, Dubai, Hamborg, Las Vegas, Los Angeles, Munchen, Prag, San Francisco, Sao Paulo, Singapúr, Sydney og Jóhannesarborg svo nokkra séu nefndar.

 PHILIP KOTLER UM TEEMU MOILANEN



Philip Kotler, einn fremsti og þekktasti markaðsmaður í heimi, flækir ekki hlutina í dómi sínum á á nýútkominni bók dr. Teemu Moilanen um mörkun áfangastaða (e. destination branding). Kotler segir bókina vera einhverja þá verðmætustu sem gefin hefði verið út í flokki markaðsbókmennta og að engin þjóð, borg eða áfangastaður ætti að fara af stað í stefnumótun fyrir áfangastaði sem vörumerki án þess að kynna sér hana vel.

 

HEILDARHUGSUN AMSTERDAM Í TÍU FRÁBÆR ÁR



Denise Heijmen er rannsóknarstjóra hjá I amsterdam.  Amsterdam hefur náð mjög afar eftirtekta-verðum  árangri í mótun síns vörumerkis  en heimsóknum ferðamanna til Amsterdam hefur fjölgað verulega. Borgin hefur unnið skipulega í sínu vörumerki í um áratug og samtvinnað sitt innra starf og starf með hagsmunahópum, svo sem ferðaþjónum og í margskonar viðburðahaldi, í þróun vörumerkisins.  Það verður því mjög áhugavert að heyra hennar innlegg í umræðuna.

DAGSKRÁ MÁLÞINGSINS



Einar Örn Benediktsson formaður menningar og ferðamálaráðs, setur málþingið kl 8:45. Dóra Magnúsdóttir, markaðsstjóri hjá Höfuðborgarstofu, talar um árangur vörumerkisins "Reykjavík- Pure Energy" og erindi Dr. Teemu Moilanen nefnist "Cornerstones of Success in City Branding". Eftir stutt kaffihlé ræðir Friðrik Larsen, lektor við Háskólann í Reykjavík, um vörumerki í íslenskri ferðaþjónustu og Denise Heijmen, rannsóknarstjóri hjá I amsterdam.  , kynnir árangur Amsterdamborgar í þróun síns vörumerkis. Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður markaðssóknar, ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu mun svo fjalla um árangur "Inspired by Iceland" herferðarinnar í fyrirlestri sem ber yfirskriftina "Ísland: áfangastaður og vörumerki". Einar Þór Bárðarson, forstöðumaður Höfuðborgarstofu, lokar svo málþinginu en fundastjóri málþingsins verður Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar.



 Málþingið er í boði Höfuðborgarstofu en takmarkaður fjöldi sæta er í boði og því er mikilvægt að skrá sig á www.visitreykjavik.is/skraning. Boðið er upp á hressingu í kaffihléi en hádegistilboð á veitingastöðum í Hörpu.

 

Höfuðborgarstofa óskar eftir þátttöku áhugasamra aðila í vinnustofum eftir hádegi sama dag í Hörpu milli 13.00 og 15.00 um framtíðar vörumerki Reykjavíkur sem áfangastaðar. Sérstaklega þarf að haka við þátttöku í vinnustofunum við skráninguna á málþingið.