Opinn íbúafundur í Gerðubergi fimmtudaginn 21. febrúar kl. 17.00 - 18.00

Betri hverfi 2013

Fimmtudaginn 21. febrúar kl. 17.00 - 18.00 verður opinn íbúafundur í Gerðubergi.

Á fundinum kynnir verkefnahópur hugmyndir sem íbúar skráðu inn á vefinn  betrireykjavík.is.

Íbúum gefst kostur á að koma með athugasemdir um hugmyndirnar.

Íbúar Reykjavíkurborgar geta kosið um 30 verkefni í sínu hverfi í gegnum rafrænt kosningakerfi 14. - 19. mars

Breiðholt fær 46.416.346 kr. til úthlutunar í þau verkefni sem kosið verður um.