Störfum hefur fjölgað um 3000 í Reykjavík

Atvinnuleysi hefur gengið hratt niður í Reykjavík milli áranna 2010 og 2012. Þetta kemur fram í úttekt sem Skrifstofa borgarstjóra og borgarritara hefur gert út frá gögnum Vinnumálastofnunar og Hagstofu Íslands.



Í desember 2012 var skráð atvinnuleysi í Reykjavík 6% og hefur það lækkað um 2.1 % á milli ára miðað við desember 2011. Tölur frá janúar sömu ára sýna sambærilega niðurstöðu, í janúar 2012 var atvinnuleysið 7,8% en í janúar 2011 9,1%.

 

Við efnahagshrunið 2008 jókst atvinnuleysi hratt á Íslandi og kom sýnu harðar niður á Reykjavík og höfuðborgarsvæðinu en landsbyggðinni.  Þetta sést vel þegar borin er saman þróun atvinnuleysis frá árinu 2008 fyrir þessi svæði, en bilið var mest 2,4% í júní 2009. Hratt hefur gengið saman með Reykjavík og landinu í heild frá 2010. Í desember 2012 var atvinnuleysi 6,0% í Reykjavík á móti 5,7% á landsvísu. Samsvarandi  tölur fyrir janúar 2012 voru 7,8% fyrir Reykjavík og 7,2% á landsvísu. Af þessu er ljóst að atvinnuleysið hafi gengið hraðar niður á Reykjavíkur-svæðinu en á landsbyggðinni þegar rýnt er í tölur síðustu ára.



Athyglisvert er að bera saman muninn á atvinnuleysisstigi kynjanna. Frá árinu 2008 hefur atvinnuleysisstigið verið mun hærra hjá körlum en konum. Mesti munur þar á var í febrúarmánuði 2009, rétt um 7% munur en á þessu ári hefur dregið hratt saman á milli kynjanna og farið úr 2,7% í 1,0%. 

 

Vinnumarkaður

 

Þegar rýnt er í þróun á fjölda starfandi í Reykjavík milli áranna 2011 og 2012 sést að þeim hefur fjölgað um 2.300.  Fjölgun starfa frá 2010 eru 3.000 einstaklingar. Flest þessi strörf hafa orðið til á almenna vinnumarkaðinum. Gera má ráð fyrir að vinnuátaksúrræði Vinnumálastofnunar hafi skilað u.þ.b. 570 manns störfum sem voru á atvinnuleysisskrá, þ.a. var hlutur Reykjavíkurborgar 250 manns.



Atvinnuþátttaka eykst um 1,2% milli áranna 2011 og 2012. Jafnframt hækkar hlutfall starfandi um 2,5% á sama tíma og stendur í 75,6% 2012. Flutningsjöfnuður (aðfluttir umfram brottflutta) íslenskra ríkisborgara á höfuðborgarsvæðinu, sem skilgreina má sem eitt atvinnusvæði, hefur verið neikvæður frá árinu 2008. Á síðasta ári reyndist hann neikvæður um 571 hjá íslenskum ríkisborgurum en jákvæður um 359 hjá erlendum ríkisborgurum.

 

Atvinnuleysi eftir menntun og atvinnugreinum

 

Ef atvinnuleysi er skoðað eftir menntun er mesta fækkun atvinnulausra í hópi þeirra sem eingöngu hafa grunnskólapróf, ríflega 1.000 manns. Hjá háskólamenntuðum fækkar atvinnulausum um 300. Þegar litið er til atvinnugreina er fækkun atvinnulausra mest í hópi þeirra sem vinna við mannvirkjagerð, rétt um 500 manns. Í verslun fækkar atvinnulausum um 350 manns.