Matreiðslukeppnin 2013 í Hólabrekkuskóla

""

Hin árlega hópakeppni í matreiðslu fór fram 20. febr. þrír eru í hverju liði og þrír gestadómarar dæma afrakstur nemenda og vegleg verðlaun voru í boði fyrir þrjú efstu liðin.

Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin. Meistarakokkar skólans, sigurliðið var skipað þeim; Arndísi Nínu Mortensen Másdóttur, Ásgeiri Arnari Sigurðssyni og Dovydas Eídukas, nemendum í 9. bekk. Sigurliðinu verður boðið út að borða á Grillmarkaðinn í Austurstræti sem jafnframt var styrktaraðili keppninnar ásamt Ekrunni, Kjarnafæði, Bönunum ehf, sælgætisgerðinni Freyju og Blómavali.

Dómarar voru: Iðunn Kröyer, kokkur hjá Nathan&Olsen, Tómas Meyer, sölustjóri og bakari hjá Ekrunni og Sigurður Sigurðsson hjá Kjarnafæði.