Bílastæðasjóður á tímamótum

Í dag eru 25 ár síðan Bílastæðasjóður Reykjavíkur var stofnaður í núverandi  mynd. Borgarráð samþykkti nýlega að stofna opinbert hlutafélag um reksturinn og mun borgarstjóri á næstunni boða til stofnfundar. Í stjórn Bílastæðasjóðs ohf. verða Karl Sigurðsson, Kristín Soffía Jónsdóttir og Gísli Marteinn Baldursson. 

Í tilefni afmælisins verður í dag í húsnæði Bílastæðasjóðs að Vonarstræti 4 opnuð sýning með skopmyndum af stöðuvörðum við vinnu sína.  Friðrik Bridde teiknaði myndirnar en hann er bæði borgarstarfsmaður og viðskiptavinur Bílastæðasjóðs.

Megintilgangurinn með rekstri Bílastæðasjóðs er að stýra nýtingu bílastæða í því skyni að útvega gestum og viðskiptavinum vel staðsett skammtímastæði þar sem nauðsyn krefur. Starfsmenn Bílastæðasjóðs hafa jafnframt með eftirlit með bifreiðastöðum í því skyni að greiða fyrir umferð gangandi jafnt sem akandi vegfarenda. Bílastæðasjóður rekur sjö bílahús í miðborg Reykjavíkur með 1.140 bílastæðum.

Þó svo að Bílastæðasjóður teljist aðeins 25 ára þá hefur lagningum fararskjóta í Reykjavík verið stýrt mun lengur og jafnvel áður en bílar komu til sögunnar. Í auglýsingu frá 1880 var ferðafólki bent á að því væri óheimilt að láta hesta sína standa fyrir framan tiltekið verslunarhús, heldur bæri að koma reiðskjótum í portið eða fara með þá í haga.

Rúmum áratug síðar eða í lögreglusamþykkt frá 1891 er kveðið á um að aktólum sé haldið frá gangstéttum. ,,Stjettir meðfram götum skulu eingöngu ætlaðar fyrir gangandi menn; þar má eigi fara með sleða, hjólbörur, vagna nje önnur aktól, nema barnavagna …“.  Ríflega 100 árum síðar erum við enn að berjast við að halda aktólum frá gangstéttum, aðallega bílum.

Fyrstu stöðumælarnir í Reykjavík voru settir upp fyrir 55 árum síðan eða 12. ágúst 1957.  Þá kostaði 1 krónu að leggja í 15 mínútur og 2 krónur fyrir 30 mínútur sem var hámarkstími.  Í dag kostar klukkustundin 225 kr. og enginn hámarkstími. 

Kolbrún Jónatansdóttir er framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs.