Sigurvegari í söngvakeppni Samfés kom úr Vesturbænum

Fimm manna dómnefnd, skipuð landsþekktum tónlistarmönnum, töldu hana standa sig best en keppendur úr 30 félagsmiðstöðvum á landinu tóku þátt í keppninni.

Í öðru sæti varð Guðrún Ólafsdóttir úr Bústöðum með lagið Vetrarnætur sem var frumsamið. Félagsmiðstöðvarnar Þróttheimar, Óríon og 105 skiptu með sér þriðja til fimmta sætinu.

Dómnefndin var skipuð Ragnheiði Gröndal, Berglindi Björk Jónasdóttur, Pétri Erni Guðmundssyni, Stefaníu Svavarsdóttur og Gísla Magnasyni.

Við óskum Margréti Stellu innilega til hamingju með frábæran árangur.