Seinkun á þjónustu hjá Reykjavíkurborg vegna veðurs

Reikna má með að öll heimaþjónusta, heimahjúkrun og félagsleg heimaþjónusta gæti orðið sein í dag vegna veðurs. Haft verður samband við fólk sem þjónusta fellur niður hjá. Heimsending matar á vegum velferðarsviðs fer verulega úr skorðum í dag vegna veðurs. Reynt verður að dreifa því sem hægt er í dag, annars verður það gert á morgun ef veður leyfir. Einnig hefur Ferðaþjónusta fatlaðra í Reykjavík hætt akstri. Þó verður unnið í því eins og hægt er að koma þeim heim sem fóru af stað í morgun.