Þrjár stúlkur unnu Stóru upplestrarkeppnina í Grafarvogi
Þær Berglind Gunnarsdóttir Vættaskóla, Hekla Gná Heimisdóttir Rimaskóla og Hanna Björt Stefánsdóttri Húsaskóla urðu hlutskarpastar fjórtán lesara í úrslitum Stóru upplestrarkeppninnar í Grafarvogi. Það voru nemendur grunnskólanna í Grafarvogi og Kjalarnesi sem tóku þátt í úrslitunum, sjö drengir og sjö stúlkur sem áður höfðu unnið keppnina í heimaskóla. Eins og áður segir voru það stelpurnar sem stóðu sig talsvert betur að mati dómnefndar og unnu til allra verðlaunanna.
Keppendur lásu einn sögukafla úr bók Friðriks Erlingssonar um Benjamín dúfu, ljóð eftir Þóru Jónsdóttur frá Laxamýri og að lokum ljóð að eign vali. Formaður dómnefndar, Sesselja Guðrún Sigurðardóttir hrósaði öllum keppendum fyrir góðan undibúning og frammistöðu í lokakeppninni og sagði dómnefndinni hafa verið nokkur vandi á höndum að komast að niðurstöðu. Sigurvegararnir þrír fengu vegleg peningaverðlaun að launum og öllum þátttakendunum var afhend bókargjöf frá Félagi íslenskra bókaútgefenda. Umsjón með keppninni hafði Ragnheiður Axelsdóttir námsráðgjafi í Miðgarði.