Unnið sleitulaust við snjóhreinsun

„Ástandið að verða nokkuð gott, tækin eru farin að komast inn í hverfin til vinnu í húsagötum en þar er ástandið erfitt vegna ófærðar og bíla sem eru fyrir“, segir Guðjóna Björk Sigurðardóttir, skrifstofustjóri þjónustu og reksturs borgarlandsins hjá Reykjavíkurborg.

Unnið var til klukkan 23 í gærkvöldi en þá héldu 2 bílar áfram til klukkan fjögur í nótt. Þá bættist við mannskapur á tækjum í samræmi við viðbragsáætlun snjóhreinsunar og við tók áframhaldandi ruðningur, söltun og söndun á götum, stofnanalóðum, biðstöðvum strætó, sem og á göngu- og hjólaleiðum.   Allur tiltækur mannskapur er við þessi verkefni.  Dráttarvélar borgarinnar 10 talsins auk 35 verktaka á gröfum og ruðningstækjum. Allir 11 flokkabílar hverfastöðvanna  eru úti við störf fullmannaðir og vinna einkum við hreinsun á tröppum og biðskýlum. Unnið verður af krafti í allan dag.

Áhersla er lögð á staði þar sem færðin er þyngst svo sem í efri byggðum og í Skerjafirði þar sem skóf mikið frá flugvelli . Guðjóna segir að á heildina litið sé allt í góðu standi.

Ábendingar um snjóruðning er gott að setja inn á ábendingavefinn www.reykjavik.is/borgarland og einnig kemur símaver ábendingum áleiðis.

Nánar um viðbragðsáætlun Reykjavíkurborgar > Snjóhreinsun og hálkueyðing.