Ólík staða karla og kvenna - Kynlegar tölur 2013

Í dag, 8. mars, er alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti. Í tilefni dagsins hafa mannréttindaskrifstofa og mannréttindaráð Reykjavíkurborgar gefið út bæklinginn Kynlegar tölur sem kemur nú út í þriðja sinn. Bæklingurinn hefur að geyma tölfræðilegar upplýsingar þar sem varpað er ljósi á ólíka stöðu karla og kvenna eins og hún birtist á ýmsan hátt í borginni og á landinu.

Margt athyglisvert kemur fram í bæklingnum. Sem dæmi má nefna að mun fleiri konur brautskrást á háskólastigi en karlmenn. Skólaárið 2009 - 2010 brautskráðust 1.187 konur á móti 664 körlum. Á framhaldsskólastigi brautskráðust 1.003 konur en 856 karlar sama skólaár. Kynjamunurinn er einnig töluverður þegar litið er til brautskráninga á háskólastigi eftir námssviði. Á heilbrigðis- og velferðarsviði brautskráðust aðeins 76 karlar en 541 kona. Sama gildir um brautskráningar á menntasviði þar sem fjöldinn er 691 kona en aðeins 145 karlar. Fleiri karlmenn en konur brautskrást hins vegar úr verkfræði, framleiðslu og mannvirkjagerð eða 222 en 151 kona.

Fram kemur að 2012 leituðu 10 karlmenn til Neyðarmóttöku vegna nauðgana en einn árið áður. Konur sem komu á móttökuna 2012 voru  129 en 117 árið áður. Árið 2012 leituðu 241 kona til Stígamóta og 23 karlmenn.

Athygli vekur að stærsti hluti viðtakenda fjárhagsaðstoðar í Reykjavíkurborg eru einhleypir, barnlausir karlar, eða 1.891. Einstæðar konur með börn koma þar á eftir en þær eru 1.002.

 

Hlutfall aðspurðra karla sem svöruðu því til að þeir hefðu verslað raftæki og myndavélar á netinu er hærra en kvenna eða 34% á meðan hlutfall aðspurðra kvenna sem sagðist hafa gert það var 11%. Konur eiga þó vinninginn þegar kemur að því að versla föt, skó og íþróttavörur á netinu en það sögðust 53% aðspurðra kvenna hafa gert en 38% karla.

Fleiri karlar hafa verið í hópi frambjóðenda til Alþingiskosninga í síðustu þrem kosningum, 2003, 2007 og 2009. Fleiri karlar hafa einnig verið kjörnir á þing en fleiri konur en karlar eru varaþingmenn. Til dæmis voru 36 karlar kjörnir á þing árið 2009 en 27 konur.

Nokkur munur er einnig á fjölda kjörinna þingmanna annars vegar og þingkvenna hins  vegar þegar Reykjavík og landsbyggðin eru borin saman. Í Alþingiskosningunum 2009 voru 12 þingkonur kjörnar í Reykjavík en 10 þingmenn á meðan 26 þingmenn hlutu kosningu í landsbyggðarkjördæmunum en aðeins 15 þingkonur.

Kynlegar tölur 2013.