Þröng á þingi um farsæla öldrun
Góður andi ríkti á framtíðarþingi um farsæla öldrun sem haldið var í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær. Þingið er samstarfsverkefni fjölda aðila sem starfa að málefnum aldraðra að frumkvæði Öldrunarráðs Íslands. Markmið þingsins er að skapa vettvang fyrir þá sem koma að öldrunarmálum eða hafa áhuga á öldrunarmálum, vilja stuðla að heilbrigðri umræðu um málefni aldraðra og skiptast á skoðunum um hvernig samfélag við viljum búa öldruðum.
Tæplega 160 manna hópur mætti til þingsins í Tjarnarsal og færri komust að en vildu. Að loknu ávarpi borgarstjóra og velferðarráðherra var hafður sami háttur á þessu þingi og á þjóðfundum 2009 og 2010. Þátttaka var öllum opin frá 35 ára aldri.
Í erindi borgarstjóra, Jóns Gnarr, kom m.a. fram: „Að Í þjóðfélagsumræðu er stundum fullyrt að gamalt fólk sé svona eða hinsegin en það gleymist að eldra fólk er að sjálfsögðu allskonar rétt eins og við hin. Eldri borgarar er fjölbreyttur, kraftmikill og skemmtilegur hópur sem auðgar borgina með þekkingu sinni og reynslu.“
Að lokum benti Jón Gnarr á að á þingið væri tækifæri til að móta stefnu fyrir eldri borgara til framtíðar. Þess má geta að borgarstjórn samþykkti sl. haust að stofna öldrunarráð sem yrði borgarstjórn til ráðgjafar í málefnum eldri borgara.
Velferðarráðherra, Guðbjartur Hannesson, tók undir orð borgarstjóra en hann benti m.a. á að við ættum að hætta að setja aldurshópa og æviskeið í flokka og nefndi hann dæmi um ungmenni í skóla sem fengju þau skilaboð að skóli væri undirbúningur undir lífið en í raun eru skólinn lífið. Það sama má segja um aldraða, þessi ár eru engin endalok eða undirbúningur fyrir lokin, þetta er lífið. Við eigum að lifa lífinu njóta þess óháð aldri ekki síst í ljósi þess að helmingslíkur eru á því að einstaklingur sem er fimmtugur í dag nái að eiga aldarafmæli.
Allir sem sóttu þingið voru þátttakendur og mátti heyra saumnál detta í Tjarnarsal þegar menn byrjuðu að skrá niður hugmyndir um kosti þess að eldast. Við borðin sköpuðust einnig eldheitar og skemmtilegar umræður og flestir nutu þess að taka þátt í umræðum. Unnið verður úr niðurstöðum á næstu vikum og þeim gerð skil í skýrslu sem alþingismenn, ráðuneyti, sveitafélög og fleiri fá afhent. Þau viðfangsefni sem rætt var um voru: Hvað er farsæl öldrun? Hvaða væntingar hefur samfélagið til aldraðra? og Hvaða væntingar hafa aldraðir til samfélagsins?
Að lokum vor settar fram tillögur um aðgerðir sem stuðlað gætu að farsælli öldrun hér á landi.