Innköllun af markaði á Boeuf Bourguignon kjötrétti

Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur

Efni: Innköllun af markaði á Boeuf Bourguignon kjötrétti vegna ómerkts ofnæmis- og óþolsvalds (súlfít).

Eldhúsið hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur,  ákveðið að innkalla af markaði Boeuf Bourguignon vegna þess að ofnæmis- og óþolsvaldurinn súlfít er ekki merktur á umbúðum vörunnar.

Vöruheiti: Boeuf Bourguignon

Strikanúmer: 5694310451345

Nettóþyngd: 1300 g.

Framleiðandi: Eldhúsið, Kirkjustétt 2 - 6, 113 Reykjavík.

Umbúðir: Plastbakkar.

Geymsluskilyrði: Kælivara.

Dreifing: Verslanir Nóatúns og Krónunnar um land allt.

Súlfít, í styrk sem er yfir 10 mg/kg eða 10 mg/l er á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda.  Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla. 

Tekið skal fram að varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir súlfíti.  Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru viðkvæmir fyrir súlfíti eru beðnir um skila henni til þeirrar verslunar sem hún var keypt í.