Tveir milljarðar á ári til íþrótta í Reykjavík
Reykjavíkurborg og Íþróttabandalag Reykjavíkur f.h. íþróttafélaganna hafa gert með sér samkomulag um samskiptamál, styrkveitingar, rekstur og framkvæmdir og önnur sameiginleg hagsmunamál. Samningurinn er til þriggja ára og gildir til ársloka 2015.
Markmið samningsins er að efla tengsl aðila til að íþróttastarf í Reykjavík verði áfram kraftmikið, borgarbúum til heilla. Í því felst að skapa sem bestar aðstæður til að reka starfsemi sem tryggir borgarbúum öflugt íþróttastarf, einkum í barna- og unglingastarfi.
Íþrótta- og tómstundaráð og stjórn ÍBR annast framgang samningsins. Framkvæmdastjórar og skrifstofur þessara aðila annast dagleg samskipti aðila. Aðalstjórnir íþróttafélaganna fara með réttindi og skyldur viðkomandi félags f.h. félaganna. Aðalstjórn hvers félags ábyrgist þá þjónustu sem samningurinn mælir fyrir um og gerir jafnframt grein fyrir fjármálum félagsins í samræmi við ákvæði samningsins.
Ákvæði er í samningnum um að ÍBR og íþróttafélögin skuli sjá til þess að konur og karlar njóti jafnra tækifæra til að stunda íþróttir. Þau skulu hafa virka jafnréttisstefnu og siðareglur og fylgja mannréttinda- og forvarnarstefnu Reykjavíkurborgar. ÍBR og félögin skulu kynna sér stefnumótun Reykjavíkurborgar í mannréttinda- og forvarnarmálum.
Reykjavíkurborg mun í fjárhagsáætlun hverju sinni gera ráð fyrir styrkjum til ÍBR og íþróttafélaga, en styrkir þessir eru greiddir íþróttafélögum í gegnum ÍBR, nema styrkir vegna framkvæmda og viðhalds og reksturs borgarmannvirkja og mannvirkja sem Reykjavíkurborg leigir af öðrum aðilum. Styrkveitingar eru þessar:
1. Styrkir til reksturs skrifstofu ÍBR, reksturs sérráða innan ÍBR, ferðastyrkir, Reykjavik International games, Reykjavíkurmaraþon, Grunnskólamót höfuðborga Norðurlanda, Alþjóðaleika ungmenna, afreksíþróttamiðstöð o.fl. Fjárveiting 2013 alls kr. 56.300.000.
2. Styrkur vegna húsaleigu og æfingastyrkja samkvæmt reglum ÍBR og ÍTR. Fjárveiting alls 2013, kr. 459.893.000.
3. Styrkur vegna þjónustusamninga, íþróttafulltrúa og þjónustu félaga og sumarstarfa. Fjárveiting 2013, kr. 216.376.000.
4. Styrkur til framkvæmda samkvæmt samningum þar að lútandi og í samræmi við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar hverju sinni. Fjárveiting 2013, vegna framkvæmda 96.400.000 mkr. og vegna viðhaldsverkefna kr. 20.000.000. Alls kr. 116.400.000.
5. Styrkur vegna afnota félaganna af mannvirkjum ÍTR, skóla, Egilshöll, Keiluhöll, Laugardalshöll, Laugardalsvelli og Fylkisseli 1.144.000.000.- ÍTR annast uppgjör á húsaleigu og æfingastyrkjum í þessum mannvirkjum.
Alls nemur fjárveiting vegna 2013 kr. 1.992.969.000.
Fjárveitingar vegna 2014 og 2015 eru háðar afgreiðslu á fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar.
Þá samþykkti borgarráð sérstaka bókun um framlag til viðhaldsmála mannvirkja félaganna á næstu árum.