Sýning á náttúru Íslands opnuð í Perlunni haustið 2014
Sýning á náttúru Íslands verður opnuð í Perlunni haustið 2014. Margrét Hallgrímsdóttir, settur safnstjóri Náttúruminjasafns Íslands, Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkisins og Jón Gnarr borgarstjóri og Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs fyrir hönd Reykjavíkurborgar, undirrituðu samning um leigu á aðstöðu fyrir náttúruminjasýningu í Perlunni.
Náttúruminjasafn Íslands mun fá varanlegt húsnæði undir sýningu sem ætlað er að auka vitund og þekkingu landsmanna á náttúru Íslands. Sýningunni er ætlað að hafa mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn.
Grunnsýning Náttúruminjasafns Íslands verður opnuð í Perlunni haustið 2014. Veglega grunnsýningu um náttúru Íslands hefur vantað tilfinnanlega og nú er stigið fyrsta skrefið til að bæta úr því. Sýningunni er ætlað að auka vitund landsmanna um náttúru Íslands, vera mikilvæg fyrir náttúrufræðikennslu á öllum skólastigum og veita aðgang að því mikla fræðsluefni sem er í öðrum vísindastofnunum, náttúruminjasöfnum, náttúrustofum og þjóðgörðum landsins. Náttúrusýningar hafa mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn og eru víðast hvar meðal fjölsóttustu ferðamannastaða. Sýningin mun því styrkja upplifun ferðamanna af íslenskri náttúru. Perlan er spennandi kostur fyrir slíka sýningu enda ein mest áberandi bygging í borgarlandslaginu með útsýni til allra átta.
Náttúruminjasafn Íslands, sem samkvæmt lögum er höfuðsafn á sviði náttúruvísinda, hefur verið vanbúið í starfsemi sinni allt frá stofnun en nú mun grunnsýningin í Perlunni verða þungamiðjan í starfsemi þess.
Undirritunin fór fram í Perlunni en leigusamningurinn er til 15 ára og ársleigan 80 m.kr.
Í kjölfar undirritunar leigusamningsins verður efnt til samkeppni um hönnun grunnsýningarinnar í húsinu. Framundan er ráðning nýs forstöðumanns við safnið sem mun leiða mótun sýningarinnar og starfsemi safnsins næstu árin. Uppbygging grunnsýningar Náttúruminjasafns Íslands er liður í fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar. Þar er gert ráð fyrir að varið verði 500 milljónum króna til hönnunar og uppsetningar á sýningunni og mótun aðstöðu fyrir Náttúruminjasafns Íslands í Perlunni.