HönnunarHlemmur opnar í kvöld
Sýningin HönnunarHlemmur sem Reykjavíkurborg stendur fyrir opnar á morgun (fimmtudagskvöld) og stendur til sunnudags sem hluti af dagskrá Hönnunarmars. Borgarstjóri, sem áður fyrr hékk löngum á Hlemmi, opnar sýninguna annað kvöld kl. 20.00 og í framhaldinu spilar hljómsveitin White Signal fyrir gesti, en hún vann jólalagakeppni Rásar 2.
Til sýnis verða arkitektalíkön af ýmsum skipulagshugmyndum frá síðustu áratugum en margar þeirra eru löngu gleymdar. Gestir geta ímyndað sér hvernig borgin liti út ef þær hefðu komið til framkvæmda með því að skoða líkön í glugga fortíðarinnar á Hlemmi.
Gestir fá tækifæri til að taka þátt í skemmtilegu samráði um framtíð Hlemms sem hefur verið miðstöð almenningssamgangna í miðborginni í áratugi. Hvað gerist nú þegar sú starfssemi flytur annað? Hlemmur heldur áfram að vera til - en hvers konar Hlemmur verður það?
„Hlemmur er suðupottur menningar, hönnunar og mannlífs og hefur undanfarið meðal annars sannað sig sem ágætis tónleikastaður. Fróðlegt verður að sjá hvernig Hlemmur virkar sem sýningarsalur og spennandi að sjá hugmyndir borgarbúa varðandi framtíðarmöguleika svæðisins og hússins sjálfs“, segir Hildur Gunnlaugsdóttir einn skipuleggjenda sýningarinnar og hún á von á góðri aðsókn.
Nýjar hugmyndir og stefnur er varða umhverfis- og skipulagsmál verða kynntar og myndbönd frá ýmsum verkefnum borgarinnar undanfarinna ára verða til sýnis.
Sýningin opnar eins og áður segir fimmtudaginn 14. mars kl. 20 og stendur fram á sunnudag.