Konungur ljónanna í Hagaskóla

Á annað hundrað nemendur taka þátt í söngleiknum Konungi ljónanna sem nú er sýndur í Hagaskóla. Mikið er lagt í sýninguna sem er sú viðamesta í sögu skólans. Í söngleiknum er farið með áhorfendur í ferðalag til Afríku og fylgst með litla ljónastráknum Simba.

Sigríður Birna Valsdóttir, leiklistarkennari í Hagaskóla, hefur sett upp sjö stórar sýningar með nemendum á síðastliðnum níu árum og þetta er án efa sú stærsta. Um sjötíu nemendur sjá um leik, söng og hljóðfæraleik og yfir þrjátíu koma að sýningunni bak við tjöldin, en búningar og leikmynd söngleiksins hafa nú þegar vakið verðskuldaða athygli. Hljómsveitar- og kórstjóri sýningarinnar er Björn Thorarensen, en mörg kórlaganna eru sungin á máli Zulu-manna, sem ljær sýningunni skemmtilegan blæ. Gunnhildur Ólafsdóttir hafði yfirumsjón með leikmynd og búningum.



Viðbrögð frumsýningargesta:

„Ómissandi sýning! Besta leikhús í bænum, standandi lófaklapp í hálftíma.“

„Ég vissi að ég ætti von á góðu en þessi sýning kom mér gjörsamlega á óvart, algjörlega frábærir krakkar.“

„Tveggja tíma gæsahúð.“

Miðapantanir eru á vef skólans,