Íbúafundur um Úlfarsárdal

Reykjavíkurborg stendur fyrir almennum íbúafundi um uppbyggingu skólahúsnæðis, sundlaugar, bókasafns og íþróttamannvirkja í Úlfarsárdal miðvikudaginn 20. mars nk. Fundurinn verður haldinn í Sæmundarskóla og hefst kl. 17.30.

Á fundinum verður farið yfir skipulagsmöguleika á svæðinu til uppbyggingar á skóla-, menningar- og íþróttamannvirkjum í Úlfarsárdal en mannvirkin munu nýtast íbúum í Úlfarsárdal og Grafarholti.

Fundurinn mun standa yfir frá 17.30 – 19.00.