Styrkveitingar skóla- og frístundaráðs 2013
Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundaráðs, afhenti í gær styrki til fjörutíu verkefna sem eiga að stuðla að framþróun í skóla- og frístundastarfi. Þeir nema samanlagt um 30 milljónum króna. Afhending styrkjanna fór fram í Hannesarholti.
Mörg áhugaverð verkefni fengu styrki til þróunarstarfs, en haft var að leiðarljósi að styrkja verkefni sem leggja áherslu á læsi, lýðræði, mannréttindi og upplýsinga- og tæknimennt í leikskólum, grunnskólum og frístundastarfi.
Hæsti þróunarstyrkurinn, 2,4 milljónir króna, fór til verkefnisins Okkar mál sem miðar að því að auka samstarf í Fellahverfi um menningu, málþroska og læsi. Að því verkefni koma leikskólar, grunnskólar og frístundamiðstöðin í Fellahverfi, auk Háskóla Íslands og þjónustumiðstöðvar Breiðholts.
Hæstu almennu styrkirnir fóru til verkefnisins Moodle - vísir að verkefnabanka sem miðar að því að vinna verkefni í íslensku, samfélagsfræði og upplýsingamennt fyrir nemendur í 8. - 10. bekk, og til verkefnis Rithöfundasambands Íslands Skáld í skólum.
Sjá yfirlit yfir þróunarstyrki skóla- og frístundaráðs
Sjá yfirlit yfir almenna styrki skóla- og frístundaráðs.
Hamingjuóskir til allra styrkþega.