Fjölmenni á fundi fjölmenningarráðs og stjórnmálaflokkana í Iðnó

Húsfyllir var í Iðnó laugardaginn 16. mars sl. á opnum fundi fjölmenningarráðs og stjórnmálaflokkana. Fulltrúar 10 framboða sem bjóða sig fram til alþingis í vor kynntu sína stefnu og framtíðarsýn í innflytjendamálum. Eftir framsögurnar urðu líflegar umræður á fundinum og ljóst að innflytjendur hafa sterkar skoðanir á því hvað megi betur fara í málaflokknum. Um 25 þúsund innflytjendur búa á Íslandi og mikil fjöldi þeirra hefur rétt til að kjósa í þingkosningum. Fundurinn fór að mestu leyti fram á ensku en var jafnframt þýddur á íslensku.