Íslandsmeistarar í skák sex ár í röð

Skáksveit Rimaskóla vann fjölmennt Íslandsmót grunnskólasveita í skák sem haldið var í skólanum helgina 16. - 17. mars. Sigur Rimaskóla var nokkuð afgerandi, skáksveitin hlaut 34 vinninga af 36 mögulegum. Sveit Laugalækjarskóla varð í 2. sæti með 26 vinninga.

Með sigrinum unnu Rimaskólakrakkarnir sér rétt til þátttöku á Norðurlandamóti grunnskóla sem haldið verður í Svíþjóð í september og eiga þar möguleika á að verja titilinn frá í fyrra.

Tveir úr skáksveit Rimaskóla, Dagur Ragnarsson og Jón Trausti Harðarson,  voru að vinna sinn sjötta Íslandsmeistaratitil í röð á Íslandsmóti barnaskólasveita eða grunnskólasveita, allt frá árinu 2008. Þeir útskrifast báðir frá Rimaskóla í vor. Aðrir í Íslandsmeistarasveitinni eru Oliver Aron Jóhannesson og Nansý Davíðsdóttir.

Alls tóku 24 skáksveitir þátt í Íslandsmeistaramóti grunnskóla 2013 og sendu nokkrir skólar fleiri en eina sveit til mótsins. Þess má geta að Rimaskóli átti líka sterkustu B-sveitina að þessu sinni.