Svifryk yfir heilsuverndarmörkum
Styrkur svifryks (PM10) er yfir heilsuverndarmörkum í Reykjavík í dag, þriðjudaginn 19. mars. Í dag er hægur vindur, götur þurrar og engar líkur á úrkomu. Hálftímagildi svifryks við mælistöðina á Grensásvegi var klukkan 10 295,4 míkrógrömm á rúmmetra en sólarhrings heilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.
Næstu daga er búist við að þurrviðri og vindur getur þyrlað upp ryki af þurri jörðu og valdið rykmengun.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Áhugasamir geta fylgst með styrk svifryks á vefmæli hér til hliðar á heimasíðunni en hann sýnir styrkinn á mælistöðinni við Grensásveg.
Uppspretta svifryks í dag er m.a. frá ösku frá svæðinu í kringum Grímsvötn sem barst til höfuðborgarsvæðisins í óveðrinu um daginn. Askan hefur enn ekki náð að skolast burt.