Note: This news was published over two years ago.
Götur rykbundnar í nótt
Til að draga úr svifryki og bæta loftgæði verður unnið í nótt við að rykbinda götur í Reykjavík. Saltpækli verður úðað í vegkanta stofnbrauta til að binda það ryk sem bílaumferðin annars þeytir upp. Byrjað verður klukkan þrjú í nótt og haldið áfram þar til þungi verður kominn á morgunumferðina. Á morgun verður einnig unnið eftir þörfum.
Um páskana er svo stefnt að því að hefja almenna vorhreinsun á götum borgarinnar.