Lokahátíð Stóru upplestarkeppninnar

Lokahátíð Stóru upplestarkeppninnar í 7. bekk í Laugardal, Háaleitis- og Bústaðahverfum var haldin í Grensáskirkju þriðjudaginn 19.mars. Að keppninni standa ár hvert Raddir; samtök um vandaðan upplestur og framsögn,í samvinnu við skólaskrifstofur, skóla og kennara um land allt. Í Reykjavík annast þjónustumiðstöðvar hverfanna skipulag.

Markmið samtakanna Radda með upplestrarkeppni í 7. bekk er: 

  • Að vekja athygli og áhuga á vönduðum flutningi og framburði íslensks máls.
  • Að allt ungt fólk læri að njóta þess að flytja móðurmál sitt, sjálfu sér og öðrum til ánægju.
  • Að efla virðingu ungs fólks fyrir móðurmálinu, sjálfu sér og öðrum.

Frá Degi íslenskrar tungu, 16.nóvember, hafa nemendur í 7. bekk um allt land æft upplestur undir leiðsögn kennara sinna. Í skólakeppnum í febrúar ár hvert eru valdir tveir lesarar frá hverjum skóla sem taka þátt í lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar.

Lesarar í Grensáskirkju þann 19.mars voru 12 og komu frá Breiðagerðisskóla, Fossvogsskóla, Háaleitisskóla, Langholtsskóla, Laugalækjarskóla og Vogaskóla. Undirbúningur lesaranna var til fyrirmyndar og voru þeir skólum sínum til mikils sóma.

Keppendur voru 12:

1.      Arngunnur Hinriksdóttir, Langholtsskóla

2.      Stefanía Ragnarsdóttir, Langholtsskóla

3.      Jakob Óli Bergsveinsson, Fossvogsskóla

4.      Ernir Arnarson, Fossvogsskóla

5.      Guðlaugur Darri Pétursson, Vogaskóla

       6.     Máni Snær Þorláksson, Vogaskóla

7.      Guðrún Diljá Agnarsdóttir, Laugalækjarskóla

8.      Guðjón Þór Jósefsson, Laugalækjarskóla

9.      Ársól Þorsteinsdóttir, Breiðagerðisskóla

10.   Þorlákur H. Þorgrímsson, Breiðagerðisskóla

11.   Kolfinna Mist Rúnarsdóttir, Háaleitisskóla

12.   Ólafur Haukur Júlíusson, Háaleitisskóla

Að þessu sinni voru skáld keppninnar Friðrik Erlingsson og Þóra Jónsdóttir. Hólmfríður Hafliðadóttir úr Laugalækjarskóla og sigurvegari frá 2012 las inngang að verkum skáldanna. Keppendur lásu valda kafla úr bókinni Benjamín dúfu eftir Friðrik og ýmis ljóð eftir Þóru. Einnig lásu þeir ljóð að eigin vali. Um tónlistina á lokahátíðinni sáu nemendur úr Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar undir stjórn Guðrúnar aðstoðarskólastjóra. Sigrún Sól og Rán léku fjórhent á píanó íslenska þjóðlagið „Móðir mín í kví, kví í útsetningu Vilbergs Viggóssonar. Einnig léku þær lagið Á sprengisandi í útsetningu Vilbergs. Gunnhildur Lovísa Snorradóttir lék lagið Halleluja á trompet við undirleik Snorra Heimissonar. Í hléi voru glæsilegar veitingar á boðstólum í boði skólanna, þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis og Mjólkursamsölunnar.

Í dómnefnd sátu: Björk Einisdóttir varaformaður Radda, Baldur Sigurðsson lektor í íslensku, Bergþóra Gísladóttir sérkennari og fv.kennsluráðgjafi og Gunnar Hansson leikari. Formaður dómnefndar, Björk Einisdóttir veitti sigurvegurunum peningaverðlaun og viðurkenningarskjal. Einnig fengu skólar þeirra viðurkenningarskjal. Að auki færði Félag íslenskra bókaútgefenda öllum keppendum bók að gjöf. Allir lesarar, varamenn og skólafólk fengu hvert um sig rós sem Blómaheildsalan Samasem gaf til lokahátíðarinnar.

1.verðlaun hlaut Stefanía Ragnarsdóttir í Langholtsskóla, 2.verðlaun Guðlaugur Darri Pétursson í Vogaskóla og 3.verðlaun Guðrún Diljá Agnarsdóttir í Laugalækjarskóla.