Laugarnesskóli fær Grænfána í annað sinn
Það var mikið um dýrðir í Laugarnesskóla í dag. Í morgunsöng var sungið Katlagilslagið og eftir hádegisfrímínútur tók skólinn á móti Grænfánanum í annað sinn. Gerður Magnúsdóttir verkefnisstjóri hjá Landvernd afhenti skólanum Grænfánann til varðveislu og notkunar næstu tvö árin. Eftir athöfn á sal var fáninn dreginn að húni undir lúðrahljóm sem Vilborg Jónsdóttir stjórnaði.
Við hátíðlega athöfn á sal þar sem skólastjóri og Ingunn Anna Finnbjörnsdóttir, fulltrúi umhverfisnefndar skólans, ávörpuðu nemendur, starfsfólk og gesti voru sungin tvö lög; umhverfislag Laugarnesskóla og Vertu til er vorið kallar á þig. Það átti vel við því veðrið lék við hátíðargesti og vorhugur í öllum.
Að lokum fengu nemendur ávexti inni í stofunum sínum áður en haldið var í páskafrí.