Listamaður til láns
Vikuna 2. til 7. apríl er möguleiki á að fá að láni þrjá listamenn í gegnum útlánskerfi Borgarbókasafns Reykjavíkur. Á sama hátt og borgarbúar geta leigt út bækur, tímarit og DVD diska safnsins, verður mögulegt að leigja út danshöfundinn Ásrúnu Magnúsdóttir og myndlistarmennina Örn Alexander Ámundason og Unnar Örn til heimila á Reykjavíkursvæðinu.
Listamennirnir verða lánaðir út ásamt ákveðnum listaverkum sem þeir munu deila með lánþegunum. Við vinnslu þessara verka hafa þeir nýtt sér sína einstöku listrænu nálgun með það að markmiði að rannsaka og krafsa í staði, líkama og aðstæður hins hversdagslega lífs lántakendanna.
Verkefnið, sem ber heitið Listamaður til láns, er skipulagt af The Festival í samstarfi við Borgarbókasafn Reykjavíkur og er því listrænt stjórnað af Alexander Roberts.
Meðal listaverka sem borgarbúar hafa tækifæri á að leigja út er verkið Tuggur, þar sem myndlistarmaðurinn Örn Alexander mun skapa skúlptúra af heimilisfólki, dansverkið Reykjavík Folk Dance Festival, þar sem Ásrún Magnúsdóttir dansari óskar eftir aðstoð við að semja nýjan þjóðdans og þannig gefa þjóðinni tækifæri til að hanna sitt eigið dansverk og verkið Staðgengill, þar sem listamaðurinn Unnar Örn gefur borgarbúum tækifæri til að deila með sér og bókasafnsfræðingnum Ingibjörgu Ösp Óttarsdóttur, þeim vandamálum og spurningum sem tengjast söfnun, flokkun og förgun á þeim hlutum sem safnast upp á hverju heimili hér á landi.
Verkin fara öll fram inn á heimilum lánþega og er enginn aðgangseyrir.
Mögulegt verður að bóka leigu á listamönnunum frá og með mánudeginum 25. mars. Til að leigja út listamennina og verk þeirra er hægt að staðfesta bókun í móttöku Borgarbókasafns Reykjavíkur, hringja í síma 693 3385 eða senda netpóst með bókun á thefestival@thefestival.is.
Frekari upplýsingar um verkefnið, bókunartíma listamannana sem og verk þeirra má finna á www.thefestival.is, en þar má einnig finna bloggsíðu verkefnisins, sem er ritstýrt af sjónræna mannfræðingnum Vaidu Braziunaite.
Verkefnið er styrkt af Reykjavíkurborg, Borgarbókasafni Reykjavíkur, Kulturkontakt Nord og Ungu fólki í Evrópu.
Um verkin og listamennina
Ásrún Magnúsdóttir
Ásrún Magnúsdóttir er danstilraunamaður sem útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands með B.A gráðu í samtímadansi vorið 2011. Alla tíð hefur hún starfað sem dansari og danshöfundur bæði á Íslandi og erlendis. Hún er meðlimur ýmissa dans-og sviðslistahópa og ber þá helst að nefna Litlar og nettar, HNOÐ og Foreign Mountain. Einnig er hún meðlimur í Choreography Reykjavík sem meðal annars hefur staðið fyrir Lunch Beat Reykjavík.
Um verkið:
Nafn: Reykjavík Folk Dance Festival
Nánari lýsing:
Ákall til þjóðarinnar!
Óskað er eftir aðstoð við að semja nýjan þjóðdans!
Allir kunna þjóðsönginn en enginn kann þjóðdansinn. Nú er kominn tími til að búa til nýjan þjóðdans fyrir 21. öldina, dans fólksins!
Til þess að búa til nýjan þjóðdans vill danshöfundurinn Ásrún fá að hitta þjóðina persónulega. Ásrún vill vita undir hvaða kringumstæðum fólk dansar, af hverju sumir dansa ekki, við hvern eða með hverjum fólk dansar helst. Hún ætlar að rannsaka hefðir, tísku og þróun hreyfinga Íslendinga gegnum tíðina og skapa úr þeim nýtt sameiningartákn. Hér fær þjóðin að nota sinn kosningarétt til danssköpunar, tækifæri til þess að hanna sitt eigið dansverk! Láttu drauma þína rætast í dansi!
Ásrún óskar eftir því að fá að hitta eins marga og hún getur á öllum aldri úr öllum áttum til þess að vinna að þjóðdansinum. Þeim sem taka þátt verður svo boðið sérstaklega á sýningu þar sem þjóðdansinn verður kynntur.
Örn Alexander Ámundason
Örn Alexander Ámundason er fæddur í Reykjavík árið 1984. Hann hefur búið og starfað í Svíþjóð frá því að hann útskrifaðist frá Listaháskólanum í Malmö árið 2011. Síðustu tvö ár hefur hann sýnt meðal annars í Gautaborgar tvíæringnum, Sequences 2011, The Armory Show, Galleri F-15 og Lunds Konsthall.
Um verkið:
Nafn: Tuggur
Nánari lýsing:
Í verkinu Tuggum gefst leigjendum tækifæri til þess að fá myndlistamanninn Örn Alexander Ámundason í heimsókn að tyggja. Hann mun biðja leigjendur um að stilla sér upp og verða viðfangsefni skúlptúrs. Á meðan Örn gengur hægt og rólega í kringum viðfangsefni og umhverfi þess mun hann tyggja kex. En í stað þess að kyngja kexinu mun hann tyggja fleiri og fleiri kexkökur þangað til munnurinn er orðinn fullur. Þegar kexið nær rétta rakastiginu tekur hann það varlega úr munninum og þar með verður skúlptúrinn tilbúinn.
Unnar Örn
Unnar Örn útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1999 og lauk meistaranámi við Listaháskólann í Malmö 2003. Í vinnu sinni leikur Unnar Örn sér gjarnan með staðreyndir sögunnar, gefur þeim samhengi og annað líf innan ramma myndlistarinnar. Þannig myndast svigrúm fyrir ólíkar tegundir frásagna sem greina og efast um þær opinberu og oft altæku sögur sem sagðar eru af stofnunum samfélagsins. Vald og valdakerfi eru honum einnig hugleikin og þá oft innan ramma þess sýningarstaðar sem hann vinnur á hverju sinni. Unnar Örn er ekki bundinn neinum miðli en á síðustu árum hefur hann makrvisst unnið bókverk, auk annars prentverks tengt sýningum sínum. Verk hans hafa verið sýnd víða á erlendum sem innlendum sýningarvettvangi.
Um verkið:
Nafn: Staðgengill
Nánari lýsing:
Unnar Örn bíður notendum Borgarbókasafns Reykjavíkur uppá nýja þjónustu, en skírteinishafar geta fengið Ingibjörgu Ösp Óttarsdóttur, starfsmann Borgarbókasafnsins, í heimsókn til sín. Heimilið heldur utan um minningar okkar og bókasafnið er staður þar sem tími og minningar annarra hlaðast upp. Með því að fá heimsókn frá starfsmanni Borgarbókasafnsins gefst borgarbúum tækifæri til að deila með öðrum þeim vandamálum og spurningum sem tengjast söfnun, flokkun og förgun á þeim hlutum sem safnast upp á heimilum hér á landi.
Ingibjörg Ösp er sérfræðingur í flokkun og skrásetningu upplýsinga hjá Borgarbókasafni Reykjavíkur. Unnar Örn er listamaður og safnari sem sífellt er að leita leiða við að afskrá hluti úr lífi sínu.