Kjósum um verkefni í hverfum borgarinnar 4. - 11. apríl
Rafrænar íbúakosningar í Reykjavík fara fram dagana 4.-11. apríl nk. Íbúakosningarnar eru nú haldnar í annað sinn og bárust um 600 hugmyndir frá íbúum um framkvæmdir í hverfum Reykjavíkur inn á vefsvæðið Betri hverfi á samráðsvefnum Betri Reykjavík. Nú hefur verið farið yfir allar hugmyndirnar og hafa íbúanefndir, hverfisráð og fagteymi Reykjavíkurborgar séð um val á þeim hugmyndun sem íbúar munu kjósa um í hverfunum.
Borgarbúar eru hvattir til að kynna sér hugmyndirnar sem kosið verður um að þessu sinni en í boði eru minni og stærri verkefni í öllum hverfum borgarinnar.
Kosningakerfið opnar 4. apríl. Til að gefa verkefni atkvæði er farið inn á slóðina kjosa.betrireykjavik.is og fylgt leiðbeiningum í rafrænum kjörklefa þar til atkvæðinu hefur verið skilað.
Þau verkefni sem fá flest atkvæði koma til framkvæmda á þessu ári.