Frá stríðsmenningu til friðarmenningar sýning í Ráðhúsinu

 

Sýningin frá stríðsmenningu til friðarmenningar

Þann 4. apríl kl 18.00 verður opnuð fræðslusýning í Ráðhúsi Reykjavíkur sem ber yfirskriftina Frá stríðsmenningu til friðarmenningar.  Hún fjallar um ógnina sem stafar af kjarnorkuvopnum fyrir öryggi og afkomu mannkynsins og setur fram afdráttarlausa kröfu um að þessum vopnum verði útrýmt. Bent er á hvaða leiðir hægt er að fara til að það verði að veruleika.

Sýningin var hönnuð af Soka Gakkai International (SGI), sem eru alþjóðleg mannúðar- og friðarsamtök búddista, í tilefni af því að 50 ár voru liðin frá því að annar forseti samtakanna skoraði á heimsbyggðina að útrýma kjarnorkuvopnum á fundi með 5000 ungmennum. (8.september, 1957)  Allt frá þeim degi hafa samtökin unnið markvisst að því að vekja fólk til vitundar um hættuna sem stafar af þessum vopnum og bent á leiðir til að vinna að banni við þeim og eyðingu þeirra.

Sýningin var fyrst sett upp í New York árið 2007 til að vekja athygli almennings og ekki síst ungmenna á hugmyndinni um friðarmenningu. Síðan hefur sýningin verið sett upp á yfir 200 stöðum í 24 löndum þar á meðal hjá Sameinuðu þjóðunum og í Þinghúsinu á Nýja Sjálandi

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, flytur opnunarræðu.  Selma Björnsdóttir söngkona mun syngja og Dj Margeir spilar tónlist fyrir gesti.

Það eru Búddistasamtökin SGI á Íslandi sem standa fyrir sýningunni hér á landi. Markmið SGI á Íslandi með þessari sýningu er að styðja þá kröfu að sáttmáli um bann og afvopnun kjarnorkuvopna verði að veruleika fyrir árið 2015. Liður í því er að fá stjórnvöld til að lýsa Ísland kjarnorkuvopnalaust svæði. 

Sýningin verður opin 4. - 14. apríl á opnunartíma Ráðhússins og er nemendum og kennurum sérstaklega boðið að koma á sýninguna.