Rafrænar íbúakosningar um betri hverfi eru hafnar!
Rafrænar íbúakosningar í Reykjavík um verkefni í hverfum borgarinnar hefjast á miðnætti í kvöld. Kosningarnar standa yfir dagana 4. - 11. apríl. Til að kjósa fara kjósendur inn í rafrænan kjörklefa á vefslóðinni kjosa.betrireykjavik.is og auðkenna sig með aðalveflykli ríkisskattstjóra eða rafrænum skilríkjum. Vefslóðin verður ekki virk fyrr en eftir miðnætti. Allir sem voru orðnir 16 ára um síðustu áramót og eiga lögheimili í Reykjavík geta kosið.
Alls eru 229 verkefni í boði í hverfum Reykjavíkur, allt að 30 verkefni í hverfi. Verkefnin voru valin úr hugmyndum sem íbúar sendu inn á vefsvæðið Betri hverfi á samráðsvefnum Betri Reykjavík.
Meðal athyglisverðra valkosta í kosningunum eru þrír strandblakvellir, hreystibraut við skóla, hundagerði, skíðaaðstaða, jólaljós- og skreytingar, sleðabrekka, aparólur, útilistaverk og aflraunasteinar. Á verkefnalistunum eru bæði minni og stærri hugmyndir, sem bæta og fegra íbúahverfi borgarinnar. Áætlaður kostnaður við framkvæmd hugmyndanna er allt frá 30 milljónum króna niður í 300 þúsund kr.
Um 600 hugmyndir frá íbúum bárust inn á vefsvæðið Betri hverfi en þar var hægt að setja inn hugmyndir til 15. febrúar sl. Er það nær helmings fjölgun frá því í fyrra þegar 350 hugmyndir bárust.
Þegar hugmyndavefnum var lokað tóku íbúanefndir úr hverfunum, hverfisráð og fagteymi Reykjavíkurborgar við hugmyndunum. Þessir aðilar fóru yfir allar hugmyndirnar og völdu þær frambærilegustu til uppröðunar í íbúakosningunum.
Verkefni sem kosin verða koma til framkvæmda á þessu ári og er kostnaðurinn við þau 300 milljónir.
Þetta er í þriðja sinn sem rafrænar íbúakosningar eru haldnar í Reykjavík. Í fyrra var notast við rafræn auðkenni í slíkum kosningum í fyrsta sinn á Íslandi. Voru þá 124 verkefni kosin og hafa þau nú að mestu verið framkvæmd af hálfu borgarinnar.
Kosið er á vefslóðinni kjosa.betrireykjavik.is.