Note: This news was published over two years ago.
Reykjavíkurborg auglýsir eftir starfsmannastjóra
Reykjavíkurborg auglýsir nú stöðu starfsmannastjóra borgarinnar. Starfsmannastjóri Reykjavíkurborgar hefur yfirumsjón með mannauðsmálum Reykjavíkurborgar, hefur forystu um stefnumótun, veitir ráðgjöf í þeim efnum og gegnir starfi deildarstjóra mannauðsdeildar ráðhúss. Það er Capacent sem hefur umsjón með ráðningunni og allar upplýsingar má finna á vef þeirra og þar er einnig sótt um starfið.