Gefum miðborginni lit og skreytum húsgafla
Ólafur Egilsson sendi hugmynd inn á samráðsvefinn Betri hverfi um að skreyta húsgafla í miðborginni. Nú er hugmynd hans meðal þeirra verkefna sem kosið er um í miðborginni í rafrænum íbúakosningum um betri hverfi sem nú standa yfir.
Aðspurður um hvernig hann hefði fengið þessa hugmynd segir Ólafur hana hafa fæðst af því hversu margir gluggalausir og dapurlegir húsgaflar eru í miðborginni. „Borgin á að vera litrík og falleg. Edi Rama, Borgarstjóri Tirana, höfuðborgar Albaníu, gerði átak í þessum málum. Þegar járntjaldið féll var borgin grá og drungaleg, gæpatíðni var há og allt í drasli. Edi hafði ekki mikið fjármagn á milli handanna en hann er myndlistarmaður og ákvað að verja fjármagni í að láta mála og skreyta hús borgarinnar. Hvort sem það var aðalástæðan eða ekki þá lækkaði glæpatíðni, fólk fór að sópa göturnar af sjálfsdáðum, virðing borgaranna fyrir umhverfi sínu jókst. Myndlist hefur góð áhrif á fólk“, segir Ólafur.
Þegar kemur að hugmyndum Ólafs um útfærslu hugmyndarinnar kemur margt til greina. “Það væri hægt að bjóða fólki að sækja um að fá húsgaflinn hjá sér málaðann. Svo gætu borgaryfirvöld líka farið á stúfana og valið einhvern ákveðinn fjölda gafla og samið svo við eigendurna. Með myndverkin sjálf þá væri hægt að leita til tiltekinna listamanna, til dæmis hefur Sara Riel verið að gera mjög skemmtileg verk, svo væri líka hægt að fá íbúa til að senda sjálfa inn hugmyndir að gaflverkum. Kannski væri líka hægt að virkja upprennandi listamenn í gegnum Hitt húsið – miðstöð ungs fólks, þar má örugglega finna hæfileikafólk sem væri til í að vinna með aðeins stærri myndflöt en gengur og gerist,“ segir Ólafur að lokum.
Ert þú búin/n að kjósa í íbúakosningum um betri hverfi? Kosningin stendur yfir til 11. apríl á https://kjosa.betrireykjavik.is