Tónabær rokkar 2013!
Ný hljómsveitakeppni unglinga - Tónabær rokkar! - verður haldin í Tónabæ föstudaginn 12. apríl.
Keppnin er vettvangur fyrir börn og unglinga sem eru i tónlist til þess að spila við bestu aðstæður og í fullkomnu hljóðkerfi. Einu skilyrði fyrir þátttöku er að sérhver hljómsveit eða flytjandi verður að flytja a.m.k. eitt frumsamið lag.
Markmiðið með keppninni er að hvetja unglinga úr Reykjavík til þess að koma tónlist sinni á framfæri.
Verðlaun eru í boði og sigurvegararnir fá tækifæri til þess að spila í Norðurljósasal Hörpunnar á Barnamenningarhátíð þann 23. apríl.
Dómnefnd verður skipuð fagfólki úr tónlistarlífinu, meðal annars meðlimum hljómsveitanna Mammút, Jón Jónsson og Reykjavík.
Keppnin hefst kl. 19:30 og lýkur 22:00. Aðgangseyrir er 500 kr. og eru allir velkomnir, sérstaklega aðstandendur keppenda og unglinga úr Reykjavík.