Fundur 9. apríl vegna breytingar á deiliskipulagi við Rauðarárholt, Brautarholt 7

Boðað er til aukalegs hagsmunaaðilafundar vegna breytingar á deiliskipulagi við Brautarholt 7. Fundurinn er haldinn í tilefni að því að tólf athugasemdir bárust vegna hagsmunaaðilakynningar. Öllum þeim sem sendu inn athugasemdir á kynningartíma hefur verið boðið bréfleiðis á fundinn.



Á fundinum kynnir deiliskipulagshöfundur deiliskipulagstillögu og breytingar á henni frá hagsmunaaðilafundi, síðan hafa íbúar tækifæri á að koma með spurningar og athugasemdir. Fundurinn verður haldinn að Höfðatorgi, Borgartúni 12 - 14 þriðjudaginn 9. apríl 2013 kl 16.00 í fundarsalnum Kerhólum á 7. hæð vestur.



Erindi er, samkvæmt auglýsingu, tilkynningar í þjónustuveri og á síðunni www.skipbygg.is. Athugasemdafrestur vegna auglýsingar er til og með 13. maí nk. Öllum athugasemdum sem berast skipulagsfulltrúa, Borgartúni 12-14 eða á netfangið skipulag@reykjavik.is á auglýsingartíma verður svarað að lokinni afgreiðslu á erindi.