Note: This news was published over two years ago.
Breiðholt
Verkefnin:
Lagfæra göngustíga í Efra Breiðholti
Endurbætur á gönguleiðum í Efra Breiðholti. Nánari staðsetningar ákveðnar síðar.
Kostnaður 10,0 m.kr.
Setja gróður og bekki á svæði sunnan Fella og Hólakirkju
Gera áningarstað með bekkjum, lagfæra svæðið og gróðursetja berjarunna. Ekki er um leiksvæði að ræða samkvæmt skipulagi.
Kostnaður 3,0 m.kr.
Bæta öryggi gangandi á Seljabraut, við Þína verslun
Setja þrengingu á Seljabraut til móts við Þína verslun, þar sem er miðeyja og upphækkun í dag.
Kostnaður 7,0 m.kr.
Lagfæra skólalóð Breiðholtsskóla
Lagfæringar á lóð í samráði við skólastjóra.
Kostnaður 5,0 m.kr.
Endurnýja stíga austan Breiðholtsskóla
Bæta aðgengi og öryggi gangandi vegfarenda með því að lagfæra stíga austan Breiðholtsskóla.
Kostnaður 10,0 m.kr.
Bæta aðgengi að tjarnarsvæði í miðju Seljahverfi
Gera gott aðgengi að svæði þar sem bekkir eru (sólarmegin) t.d. helluleggja/malbika.
Kostnaður 4,0 m.kr.
Gróðursetja tré og runna á opnum svæðum í Bakkahverfi
Gróðursetja á völdum stöðum í hverfinu, t.d. við Arnarbakka, við Álfabakka/Blöndubakka og við Maríubakka.
Kostnaður 3,0 m.kr.
Gera strandblakvöll á leiksvæði milli Hálsasels og Flúðasels
Setja upp strandblakvöll á leiksvæði milli Hálsasels og Flúðasels.
Kostnaður 4,0 m.kr.
Fjarlægja stálboga/hindranir úr vegi gangandi/hjólandi
Fjarlægja stálboga/hindranir af stígum, úr vegi gangandi og hjólandi vegfarenda. Nánari staðsetningar ákveðnar síðar.
Kostnaður 1,0 m.kr.
Setja upp lítið hundagerði sunnan við Seljahlíð
Setja 300 m2 hundagerði þar sem hundar geta leikið frjálsir innan girðingar, sunnan við Seljahlíð.
Kostnaður 2,5 m.kr.
Setja hringtorg á gatnamót Jaðarsels og Seljabrautar
Bæta umferðaröryggi með því að setja upp hringtorg á gatnamót Jaðarsels og Seljabrautar.
Kostnaður 30,0 m.kr.
Setja snjóbræðslu í efsta hluta Höfðabakka
Bæta umferðaröryggi með því að setja upphitun í efsta hluta Höfðabakka.
Kostnaður 30,0 m.kr.
Lagfæra göngustíg meðfram Grófarseli 24
Lagfæra yfirborð á gönguleið frá lóðamörkum niður á aðalstíg.
Kostnaður 1,5 m.kr.
Grynnka tjörn við Hólmasel til að bæta öryggi barna
Kostnaður 1,0 m.kr.
Lagfæra göngustíg meðfram Brúnastekk 1
Bæta stígatengingar með því að lagfæra gamlan hellulagðan stíg.
Kostnaður 2,0 m.kr.
Fjarlægja hindranir á stíg við leikskólann Hálsaskóg
Fjarlægja hindranir á stíg úr vegi gangandi og hjólandi vegfarenda.
Kostnaður 1,0 m.kr.
Endurbæta leiksvæði við Fremristekk
Endurbæta leiksvæði með nýjum "óvenjulegum" tækjum og betri aðstöðu.
Kostnaður 10,0 m.kr.
Setja upp stórar ruslatunnur við skóla og íþróttasvæði
Setja upp stórar ruslatunnur við skóla og íþróttasvæði í hverfinu. Staðsetningar ákveðnar síðar.
Kostnaður 2,0 m.kr.
Setja bekki og ruslastampa á ýmsa staði í Seljahverfi
Setja upp fleiri bekki og ruslastampa í hverfinu. Staðsetningar verða ákveðnar síðar í samráði við hverfisráð.
Kostnaður 4,0 m.kr.
Fegra umhverfi Breiðholtsbæjarins við Skógarsel
Lagfæra og fegra umhverfi Breiðholtsbæjarins við Skógarsel í samvinnu við umsjónaraðila.
Kostnaður 2,0 m.kr.
Setja gönguljós á Arnarbakka við Dvergabakka
Bæta öryggi gangandi vegfarenda með því að setja upp gönguljós á Arnarbakka, vestan við Dvergabakka.
Kostnaður 12,0 m.kr.
Bæta skíðaaðstöðu í Seljahverfi með nestisbekkjum o.fl.
Bæta aðstöðu til útiveru við skíðaaðstöðuna í Seljahverfi með því að setja upp borðbekki o.fl.
Kostnaður 5,0 m.kr.
Setja upp hraðahindrun við leikskólann Hraunborg
Setja upphækkaða öldu eins og er aðeins austar í götunni. Gangbrautarmál eru í heildarendurskoðun.
Kostnaður 3,0 m.kr.
Gera litla sleðabrekku fyrir yngri börn í Hólunum
Bæta aðstöðu til útiveru og leikja með því að endurbæta leikumhverfi og gera litla sleðabrekku fyrir yngri börn í Hólunum.
Kostnaður 7,5 m.kr.
Endurnýja gangstéttir á svæðinu milli Bakka
Endurnýja gangstéttir í neðra Breiðholti.
Kostnaður 10,0 m.kr.
Setja upp útilistaverk í Efra Breiðholti
Hverfisráð í samvinnu við listasafn/menningar og ferðamálaráð kaupi eða leigji listaverk til að setja upp t.d. við Höfðabakka.
Kostnaður 5,0 m.kr.
Setja hraðahindrun í Seljaskóga - nánar staðsett síðar
Hraðahindrun í Seljaskóga. Nánari staðsetning í samráði við hverfisráð.
Kostnaður 2,0 m.kr.
Verð samtals 178,5 m.kr.
Fjárheimild hverfis 46,4 m.kr.
Mismunur 132,1 m.kr.