Baðmenning í Nauthólsvík
Í dag fjallar Óttarr Hrafnkelsson, starfsmaður ÍTR í Nauthólsvík um baðmenningu Reykvíkinga þá og nú. Óttarr segir frá baðmenninguna frá 1949 til dagsins í dag. Erindið er hluti að Grænum apríl.
Margt hefur breyst frá því að Ylströndin opnaði t.d. eru þarna búningsklefar, heitur pottur og opið allt árið auk þess sem baðmenningin er orðin mun fjölskylduvænni en áður var.
Óttarr rekur sögu „Heita læksins“, þessarar miklu heilsulindar og lastabælis, sem var. Hann segir baðmenningu í Nauthólsvík hafa byrjað í kringum árið 1949 og bauð m.a. hótel Ritz, sem þá var staðsett í Nauthólsvík, uppá sjóbaðsaðstöðu.
Það er óhætt að segja að það viðri vel til útiveru í Nauthólsvíkinni í dag og allir hvattir til að mæta á þaki Ylstrandarhússins klukkan 18.00 og hlýða á erindi Óttars. Þeir sem vilja geta svo skellt sér í sjósund og / eða heita pottinn að erindi loknu.