Rúmlega fjögur þúsund hafa þegar kosið í íbúakosningum í Reykjavík
Nú þegar rúmur sólarhringur er þar til rafrænum íbúakosningum í Reykjavík lýkur hafa rúmlega fjögur þúsund manns kosið. Íbúakosningarnar hafa staðið yfir frá 4. apríl en kosningakerfið verður opið fram yfir miðnætti á morgun, fimmtudaginn 11. apríl.
Allir íbúar í Reykjavík sem fæddir eru 1996 eða fyrr geta kosið um framkvæmdir í hverfinu sínu en hægt er að velja á milli allt að 30 verkefna í hverju hverfi. Kosningin fer þannig fram að hvert hverfi hefur ákveðna fjárupphæð og geta íbúar nýtt hana alla í því hverfi sem þeir kjósa.
Kosið er á vefslóðinni kjosa.betrireykjavik.is en kjósendur auðkenna sig með aðalveflykli ríkisskattstjóra eða rafrænum skilríkjum.
Gott að hafa í huga
Hér eru fáein atriði sem gott er að hafa í huga þegar kosið er:
• Einungis er hægt að kjósa um framkvæmdir í einu hverfi, að eigin vali.
• Verkefni er valið með því að smella á heiti þess. Verkefnið verður dökkblátt og birtist í stikunni fyrir ofan verkefnalistann.
• Í stikunni er hægt að sjá hversu mikið fjármagn hefur verið notað og hversu mikið er eftir.
• Hægt er að hætta við að velja verkefni með því að smella á það aftur.
• Hægt er að velja verkefni þar til öll fjárheimild hverfisins er nýtt eða þar til ekkert þeirra verkefna sem eftir eru rúmast innan hennar (litur þeirra verður ljósblár).
• Þegar smellt á Greiða atkvæði hnappinn birtist staðfesting á því að atkvæði hafi verið móttekið.
• Þú getur endurtekið kosninguna eins oft og þú vilt en athugaðu að aðeins síðasta kosningin er tekin gild.
* Aðalveflykill er sá sami og notaður er til skila á skattframtali. Ef aðalveflykill hefur týnst er hægt að fá hann sendan samstundis í heimabanka. Þar birtist hann undir rafræn skjöl eða netyfirlit. Sjá hér: https://secure.rsk.is/Thjonustusidur/Vefur/TyndurVeflykill.aspx
Nokkur einföld skref
Kosningin er rafræn og einfalt að greiða atkvæði:
1. Smelltu á slóðina http://kjosa.betrireykjavik.is
2. Smelltu á hnappinn island.is
3. Auðkenndu þig með því að nota aðalveflykil ríkisskattstjóra* eða rafræn skilríki á debetkorti
4. Smelltu á það hverfi sem þú vilt kjósa í
5. Smelltu á þau verkefni sem þú vilt kjósa
6. Smelltu á Greiða atkvæði hnappinn til að ljúka kosningunni
-------------------------------------------
Nánari upplýsingar veitir Hilmar Magnússon, verkefnisstjóri Betri Reykjavíkur. Hilmar.magnusson@reykjavik.is.