Tilnefndu til mannréttindaverðlauna Reykjavíkur
Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar verða afhent í 6. sinn við hátíðlega athöfn í Höfða miðvikudaginn 16. maí en sá dagur er mannréttindadagur borgarinnar. Mannréttindaráð mun að þessu sinni einnig veita sérstök mannréttindaverðlaun til ungs fólks á grunnskólaaldri.
Mannréttindaráð Reykjavíkur óskar eftir tilnefningum til mannréttindaverðlauna 2013 og er hægt að tilnefna einstaklinga, hópa, félagasamtök eða stofnanir sem á eftirtektarverðan hátt hafa staðið vörð um mannréttindi. Einnig er í ár óskað eftir tilefningum vegna mannréttindaverðlauna ungs fólks.
Markmiðið með mannréttindadeginum er að vekja athygli á mannréttindum borgarbúa og á mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar.
Tilnefningar sendist rafrænt á netfangið mannrettindi@reykjavik.is. Síðasti skiladagur tilnefninga er 6. maí.