Hólabrekkuskóli fær spjaldtölvur
Spjaldtölvur sem nemendur Hólabrekkuskóla hafa fengið til afnota eru liður í samstarfsverkefni skólans, Nýherja og upplýsingadeildar borgarinnar og miðar að því að þróa tæknilausnir sem henta skólaumhverfinu. Þróunarverkefnið fór af stað á liðnu ári og hafa kennarar við skólann undirbúið sig á ýmsan hátt, m.a. með því að útbúa kennsluefni fyrir spjaldtölvur.
Nemendur í níunda bekk og kennarar fá 75 spjaldtölvur til afnota og verða þær prófaðar á ýmsan hátt í námi og kennslu til að hægt verði að leggja mat á árangur við val á tæknibúnaði til framtíðar.
Spjaldtölvur eru notaðar í nokkrum grunnskólum borgarinnar þykja vel til þess fallnar að ýta undir áhuga nemenda á ýmsum viðfangsefnum, auka gæði náms og draga úr ýmis konar prentkostnaði til lengri tíma.