Gott starf á velferðarsviði verðlaunað
Alúð, nýbreytni og þróun var lykillinn að vali á þeim, einstaklingum, starfsstöðum og hópum sem hlutu hvatningarverðlaun velferðarráðs fyrir árið 2012. Fyrir valinu voru þeir sem þykja til fyrirmyndar í starfi Velferðarsviðs. Allir sem starfa á eða í samvinnu við Velferðarsvið gátu sent inn tilnefningu til valnefndar.
Velferðarráð veitti virknihóp Seljahlíðar sérstaka viðurkenningu fyrir athyglisvert verkefni og þróunarstarf en hópurinn er nýbreytni í starfsemi þjónustuíbúða fyrir eldri borgar. Að því tilefni var afhending verðlauna haldin í Seljahlíð.
Hlíf Geirsdóttir, matsfulltrúi, varð fyrir valinu í flokki einstaklinga en í rökum með tilnefningu Hlífar segir m.a. að hún sé frábær starfsmaður, dugleg, útsjónarsöm og hugsi út fyrir kassann. Hún er óhrædd við að fara nýjar leiðir í vinnu sinni og hún kemur fram við alla, bæði samstarfsmenn og notendur, af mikilli virðingu, alúð og kærleika. Hlíf hefur unnið farsælt starf hjá Reykjavíkurborg sl.25 ár.
Fjölskylduheimilið Ásvallagötu vann í hópi starfsstaða en það eru hjónin Brynhildur Arthúrsdóttir og Guðbrandur Stígur Ágústsson, sem reka heimilið. Í rökstuðningi valnefndar kemur fram að á Ásvallagötu er lagt upp úr að skapa börnunum sem þar dvelja gott heimili með áherslu á fjölskyldulíf og að börnin upplifi að þau tilheyri fjölskyldu. Ásvallagata er fyrirmynd annarra í þjónustu við unglinga og Ásvallagata kom sérstaklega vel út í ytra eftirliti Barnaverndarstofu. Úrræðið er sniðið að þörfum þeirra sem þar búa en ekki öfugt eins og svo oft vill verða.
Það voru Korpúlfar, samtök eldri borgara í Grafarvogi, sem unnu í flokknum hópar/verkefni en Korpúlfar þykja hafa unnið eftirtektarvert starf í þróun félagsstarfs fyrir eldri borgara. Korpúlfar eru fyrirmynd annarra í þróun á sjálfbæru félagsstarfi auk þess að leggja sitt að mörkum í að brúa kynslóðabilið og auðga mannlíf í Grafarvogi. Það er ekki úr vegi að nefna að Korpúlfar eiga 15 ára afmæli um þessar mundir.
Markmiðið með veitingu hvatningarverðlauna er að skapa hvetjandi vinnustaðamenningu og vekja athygli á gróskumiklu starfi í velferðarmálum Reykjavíkurborgar, auk þess að stuðla að aukinni nýbreytni og þróunarstarfi.
Valnefndin er skipuð fulltrúum velferðarráðs, skrifstofu Velferðarsviðs, Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og BHM. Í valnefnd vegna verðlauna fyrir árið 2012 voru: Björk Vilhelmsdóttir, Jórunn Frímannsdóttir, Garðar Hilmarsson, Þórhildur Lilja Ólafsdóttir og Lóa Birna Birgisdóttir. Alls bárust nefndinni 50 tilnefningar sem er til marks um það góða starf sem unnið er á Velferðarsviði Reykjavíkurborgar.