Námskeið fyrir stjórnendur leikskóla

Leikskólastjórar, aðstoðarleikskólastjórar og deildarstjórar í leikskólum borgarinnar hafa á undanförnum mánuðum sótt stjórnenda- og leiðtoganámskeið. Námið fyrir leikskólastjórana var skipulagt í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, en Ragnheiður Elín Stefánsdóttir, mannauðsráðgjafi hjá skóla- og frístundasviði, hefur haft veg og vanda að námskeiðsröð fyrir aðstoðarleikskólastjóra og deildarstjóra. Þetta er eitt viðamesta símenntunarverkefnið fyrir stjórnendur leikskólanna sem farið hefur af stað hjá Reykjavíkurborg, en þátttakendur eru nær 400.

Námið fyrir leikskólastjórana fór fram hjá Háskólanum í Reykjavík og var um að ræða 5 námskeið. Leiðbeinendur voru Guðrún Högnadóttir, Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir, Gunnhildur Arnardóttir,  Aðalsteinn Leifsson og Sigríður Hulda Jónsdóttir sem eru allt sérfræðingar frá Opna háskólanum. Því námskeiði lauk nú í mars. Þar að auki hittust leikskólastjórar á milli námskeiða til að ígrunda og ræða saman um viðfangsefnin. 

Aðstoðarleikskólastjórar og deildastjórar hafa tekið þátt í svokölluðum Leiðtogaskóla sem hefur að markmiði  að efla stjórnendur leikskólanna í starfi og skapa fyrir þá vettvang til að ræða starfið og hlutverk sitt sem leiðtogi. Áhersla er á óformlegar kennsluaðferðir, hópastarf  og umræður.  Í Leiðtogaskólanum eru tveir hópar aðstoðarleikskólastjóra og sex hópar deildarstjóra.  Margir gestafyrirlesarar koma að þessu námi þar sem fjallað er m.a. um forystu, leiðtogann, stjórnunarstíla, þátttökustjórnun og fleira.  Meðal gestafyrirlesara eru Ingrid Kuhlman, Eyþór Eðvarðsson og Þórhildur Þórhallsdóttir frá Þekkingarmiðlun. Um er að ræða 5 námskeið sem  lýkur næsta haust.