Íbúar kusu verkefni sem fegra og bæta Reykjavík
Íbúakosningum um verkefni í hverfum Reykjavíkur lauk á miðnætti í gær. Alls kusu 6.076 en gild atkvæði voru 5.732.
Kjörsókn í borginni var alls 6,3%. Hæst var hún á Kjalarnesi þar sem 12,4% íbúa kusu, næst hæst í Hlíðum þar sem 8,5% íbúa kusu en kjörsókn í Grafarholti og Úlfarsárdal og Vesturbæ mældist 8,0%. Lægst var kjörsókn í Breiðholti þar sem hún var 5,0%.
Athygli vekur að fleiri konur kjósa í kosningunum en karlar. Á það við um öll hverfin í borginni en á Kjalarnesi kjósa 15,6% kvenna á móti 9,5% karla og í Hlíðum er hlutfallið 10,1% á móti 6,8%.
Íbúar kusu 111 verkefni til framkvæmda, þar af mörg meðalstór, en hugmyndir að öllum verkefnunum koma frá íbúum í hverfum borgarinnar. Kosningarnar eru bindandi fyrir borgina sem mun framkvæma öll verkefnin á þessu ári og því næsta.
Hér fyrir neðan má sjá helstu verkefnin sem framkvæmd verða í hverfum borgarinnar á þessu ári. Þar má einnig sjá hvernig atkvæði á milli hugmynda skiptast.
Árbær
Árbæingar kusu 12 verkefni en kostnaður við að framkvæma þau verður 27 milljónir króna. Fjöldi atkvæða í Árbæ var 475 og kjörsókn 5,9%. Skipting milli kynja var nokkuð jöfn í Árbæ en þar kusu 6,6% kvenna á móti 5,2% karla.
Laga útivistarsvæði við Rauðavatn Kostnaður 3 milljónir.
Ljúka frágangi í Björnslundi, klára stíga setja upp bekki og fleira 3 milljónir.
Lagfæra aðkomuveg að útivistarsvæði norðan Rauðavatns. Kostnaður 3 milljónir.
Setja upp vatnshana í Elliðaárdal – nánar staðsett síðar. Kostnaður 5 milljónir.
Setja upp lýsingu á göngustíg frá Björnslundi að undirgöngum. Kostnaður 4.5 milljónir.
Breiðholt
Breiðhyltingar kusu 14 verkefni en kostnaður við framkvæmdir á þeim verður 44.5 milljónir króna. Fjöldi atkvæða í Breiðholti var 817 og kjörsókn 5%. Skipting á milli kynja var nokkuð jöfn í Breiðholti en þar kusu 5,3% kvenna á móti 4,6% karla.
Meðal stórra verkefna í Breiðholti á þessu ári verða:
Lagfæra göngustíga í Efra Breiðholti. Kostnaður 10 milljónir.
Setja bekki og ruslastampa á ýmsa staði í Seljahverfi. Kostnaður 4 milljónir.
Lagfæra skólalóð Breiðholtsskóla. Kostnaður 5 milljónir.
Bæta skíðaaðstöðu í Seljahverfi með nestisbekkjum o.fl. Kostnaður 5 milljónir.
Bæta aðgengi að tjarnarsvæði í miðju Seljahverfi. Kostnaður 4 milljónir.
Grafarvogur
Grafarvogsbúar kusu 10 verkefni en kostnaður við framkvæmdir á þeim verður 40,2 milljónir. Fjöldi atkvæða í Grafarvogi var 816 og kjörsókn var 5,4%. Skipting á milli kynja var nokkuð jöfn en alls kusu 5.8% kvenna á móti 5% karla.
Meðal verkefna í Grafarvogi á þessu ári verða.
Leggja göngu/hjólastíg meðfram Gufuneskirkjugarði v. Borgarveg. Kostnaður 14 milljónir.
Malbika malarstíg frá Hamrahverfi að Rimaflöt/Gufunesvegi. Kostnaður 10 milljónir
Gróðursetja til skjóls á opnum svæðum í Grafarvogshverfi. Kostnaður 3 milljónir.
Grafarholt og Úlfarsárdalur
Í Grafarholti og Úlfarsárdal kusu íbúar 8 verkefni til framkvæmda en kostnaður við þær verður 17.5 milljónir króna. Fjöldi atkvæða í Grafarholti og Úlfarsárdal var 341 og kjörsókn 8%. Skipting á milli kynja var nokkuð jöfn en 8,4% kvenna kusu á móti 7,5% karla.
Meðal stórra verkefna í Grafarholti og Úlfarsárdal í ár verða:
Gróðursetja tré og runna á nokkrum stöðum í Grafarholti. Kostnaður 3 milljónir.
Leggja malarstíg að Paradísardal/Skálinni. Kostnaður 3 milljónir.
Gróðursetja tré og runna á nokkrum stöðum í Úlfarsárdal. Kostnaður 3 milljónir
Bæta aðstöðu á leiksvæði við enda Ólafsgeisla.
Háaleiti og Bústaðir
Í Háaleiti og Bústöðum voru 14 verkefni kosin til framkvæmda en kostnaður við þau verður 33.3 milljónir. Fjöldi atkvæða í Háaleiti og Bústöðum var 673 og kjörsókn 5,8%. Skipting á milli kynja var nokkuð jöfn en 6,1% kvenna kaus á móti 5,6% karla.
Meðal stórra verkefna í Háaleiti og Bústöðum í ár verða:
Endurbæta núverandi leiksvæði í Grundargerðisgarði. Kostnaður 8 milljónir.
Lýsa stíg sunnan Miklubrautar, milli Kringlu og Háaleitisbrautar. Kostnaður 3.5 milljónir.
Gróðursetja tré meðfram sunnanverðum Bústaðavegi. Kostnaður 3 milljónir.
Fegra umhverfi og setja upp borðbekki austan Réttarholtsskóla. Kostnaður 3 milljónir.
Hlíðar
Í Hlíðum voru 8 verkefni kosin til framkvæmda en kostnaður við þau verður 25.1 milljón króna. Fjöldi atkvæða í Hlíðum voru 672 og kjörsókn 8,5%. Þar kemur kynjaskipting nokkuð á óvart en 10,1% kvenna kaus á móti 6,8% karla.
Meðal stórra verkefna í Hlíðum í ár verða:
Endurbæta leiksvæði á Klambratúni með nýjum leiktækjum. Kostnaður 8 milljónir.
Malbika göngustíg á Klambratúni frá aðalstíg að Flókagötu. Kostnaður 8 milljónir.
Setja upp jóla- og eða skammdegisljós á Klambratúni. Kostnaður 3 milljónir.
Bæta öryggi gangandi við Njálsgötu/Gunnarsbraut.Kostnaður 2 milljónir.
Kjalarnes
Kjalnesingar kusu 8 verkefni til framkvæmda á þessu ári en kostnaður við þau verður 8.9 milljónir króna. Fjöldi atkvæða á Kjalarnesi var 77 en kjörsókn þar var 12,4% sem var besta kjörsókn í borginni í ár. Kynjaskipting á Kjalarnesi kemur einnig á óvart en þar kusu 15,6% kvenna á móti 9,5% karla.
Meðal stórra verkefna á Kjalarnesi verða:
Setja upp nýjan heitan pott í Klébergslaug. Kostnaður 3 milljónir.
Setja gler í grindverk við Klébergslaug til að bæta útsýni. Kostnaður 2 milljónir.
Gróðursetja í nágrenni Vallarlækjar austan Fólkvangs. Kostnaður 1,5 milljónir
Laugardalur
Í Laugardalshverfi voru 13 verkefni kosin til framkvæmda á þessu ári en kostnaður við þau verður 36.3 milljónir króna. Fjöldi atkvæða í Laugardal var 734 en kjörsókn þar var 5,8%. Kynjaskipting í Laugardal var mjög jöfn en 5,8% kvenna kusu á móti 5,7% karla.
Meðal stórra verkefna í Laugardal á þessu ári verða:
Setja upp vatnshana við stíga í hverfinu. Kostnaður 5 milljónir.
Setja upp leiktæki fyrir eldri börn á leiksvæði við Ljósheima. Kostnaður 4 milljónir.
Setja borð bekki o.fl. á svæði austan Laugardalsvallar. Kostnaður 3 milljónir.
Gróðursetja berjarunna og ávaxtatré á völdum stöðum. Kostnaður 3 milljónir.
Miðborg
Íbúar í Miðborginni kusu 8 verkefni til framkvæmda á þessu ári en kostnaður við þau verður 22 milljónir króna. Fjöldi atkvæða í Miðborg var 507 en kjörsókn var 6,8%. Í Miðborg voru 7,9% kjósenda konur á móti 5,7% karla.
Meðal verkefna í Miðborg á þessu ári verða:
Gera leiksvæði með fjölbreyttum leiktækjum í Hljómskálagarði. Kostnaður 10 milljónir.
Lagfæra opið svæði efst við Frakkastíg með gróðursetningu. Kostnaður 3 milljónir.
Skreyta gafla á völdum húsum í miðborginni með veggjamálun. Kostnaður 2 milljónir.
Vesturbær
Vesturbæingar kusu 16 verkefni til framkvæmda á þessu ári en kostnaður við þau verður 36.8 milljónir króna. Fjöldi atkvæða í Vesturbæ var 999 en kjörsókn var 8%. Skipting kynja var jöfn en 8,7% kvenna kusu á móti 7,3% karla.
Meðal stórra verkefna í Vesturbæ verða:
Endurbæta Bláa róló á horni Bræðraborgarstígs og Túngötu. Kostnaður 7 milljónir.
Setja upp hreystivöll eða þrautabraut á skólalóð Hagaskóla. Kostnaður 5 milljónir.
Endurbæta gróður á ýmsum stöðum á borgarlandi í Vesturbæ. Kostnaður 4 milljónir.
Útbúa aðstöðu við stíga á Landakotstúni með bekkjum og gróðri.