Grunnskólabörn margfalda myndlistina
Um helgina voru opnaðar sýningar í Listasafni Íslands og Þjóðmenningarhúsi á myndlistaverkum reykvískra grunnskólabarna sem þau unnu út frá listaverki Olgu Bergmann, Safni. Nemendur í Dalskóla, Grandaskóla og Laugarlækjarskóla eiga stórskemmtileg verk í Listasafninu. Þar má meðal annars finna skrímsli, fugla og egg sem geyma undarlegar verur, svo og sofandi tröll í glösum.Við opnunina var börnum og fullorðnum boðið upp á marglita drykki og kvartett úr Skólahljómsveit Austurbæjar lék fyrir gesti.
Verkefnið Myndlistin margfaldast snýst um að nemendur vinna út frá ákveðnu listaverki sem er á yfirlitssýningu íslenskrar myndlistar Þúsund ár í Þjóðmenningarhúsinu. Í vetur kynntu á þriðja hundrað manns, börn og fullorðnir, sér sérstaklega verk Olgu Bergmann. Sýningarnar sem opnaðar voru um helgina eru afrakstur þeirrar skemmtilegu vinnu. Þær sýna mikla hugmyndauðgi og sköpunargleði. Sýningarnar verða opnar alla daga fram yfir Barnamenningarhátíð og lýkur 28. apríl.