Upplestur á bréfi Martin Luther King Jr. úr Birmingham fangelsi

Borgarskjalasafn Reykjavíkur, í samvinnu við Sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi, tók þátt í alþjóðlegum viðburði á vegum skjalasafnsins í Birmingham Alabama. Hið áhrifamikla „Bréf úr Birmingham fangelsi“ var lesið upp og farið yfir lífshlaup Martin Luther King Jr. Bréfið verður lesið víða um heim þennan dag til að minnast Martin Luther King Jr. og baráttunnar fyrir mannréttindum blökkumanna í Bandaríkjunum.

Tilefnið er að 50 ár verða liðin frá því að Martin Luther King Jr. byrjaði að skrifaði hið fræga „Bréf úr Birmingham fangelsi“ sem var svar við yfirlýsingu átta hvítra presta frá Alabama um réttindabaráttu blökkumanna í Bandaríkjunum þar sem þeir segja að baráttan eigi eingöngu að fara fram fyrir dómstólum, ekki á götum úti. Í svari sínu leggur Martin Luther King Jr. hugmyndafræðilegan grunn fyrir þá friðsamlegu réttindabaráttu sem hann stóð fyrir og útskýrði af hverju almenn mótmæli væri nauðsynleg. Bréfið markaði þáttaskil í baráttunni og er þekkt fyrir einstaka rökfestu King og er einn af þekktari textum sem ritaðir hafa verið á enska tungu.

Luis Arreaga sendiherra Bandaríkjanna fjallaði um líf og störf Martin Luther King. Jón Gnarr borgarstjóri Reykjavíkur talaði um sína sýn á mannréttindabaráttu í dag. Sendiherra Bandaríkjanna, Jón Gnarr og Anna Pála Sverrisdóttir formaður Samtakanna '78 lásu svo hluta úr bréf Martins Luther King.

Markmið þessarar stundar er að vekja athygli á friðsamlegri mannréttindabaráttu um allan heim og minnast þess hve miklum straumhvörfum mannréttindabarátta blökkumanna í Bandaríkjunum með Martin Luther King Jr. í fararbroddi olli í heiminum.